11.11.1933
Neðri deild: 7. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í B-deild Alþingistíðinda. (106)
1. mál, stjórnarskipunarlög
Frsm. (Eysteinn Jónsson):
Eins og nál. ber með sér, er n. sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt. Er sú afstaða n. í beinu framhaldi af því samkomulagi, er um afgreiðslu stjórnarskrármálsins varð á síðasta þingi. N. vill, að nú verði bundinn endir á þetta mikla deilumál, en það getur því aðeins orðið, að frv. verði samþ. óbreytt, eins og n. leggur til.
N. hefir þó bent á eitt atriði í nál. sínu, sem hún telur, að betur mætti fara. Hún telur, að í stað orðanna „fjár síns ráðandi“ í 2. mgr. 4. gr. hefði átt að standa „fjárráð“. Tekur n. þetta fram í nál. til að sýna skilning sinn á þessu atriði. En í 1. er gerður munur á þessu tvennu. T. d. má taka, að maður, sem framselt hefir bú sitt til gjaldþrotaskipta, er „fjárráður“, enda þótt hann sé ekki „fjár síns ráðandi“ meðan á skiptum stendur. Er ætlazt til, að þeir menn, sem svo er ástatt um, haldi sínum kosningarrétti. N. vildi benda á þetta til athugunar, en leggur annars til, að frv. verði vísað óbreyttu til 3. umr.