11.11.1933
Neðri deild: 7. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í B-deild Alþingistíðinda. (107)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Hannes Jónsson [óyfirl.]:

Mér þykir vera komið annað hljóð í strokkinn hjá hv. 1. þm. S.-M. en var á síðasta þingi, enda er nú efnið í honum, girði og stafir úr öðru efni en áður var. Ég býst við, að engum kæmi það á óvart, þó ég gerði nokkrar aths. við það frv., er hér liggur fyrir, áður en það fær fullnaðarafgreiðslu hér á þingi. En málið liggur þannig fyrir að þessu sinni, að ekki er nema um tvennt að velja: annaðhvort að samþ. frv. óbreytt eða fella það. Af þessu tvennu vel ég hiklaust síðari kostinn og mun haga atkvgr. minni í samræmi við það. — Þetta stjórnarskrárskoffín, sem skauzt undan værðarvoðum í fleti jafnaðar- og sjálfstæðismanna meðan blíðuatlotin voru sem innilegust í tilhugalífinu, sem stofnað var til vorið 1931, hlaut móðurlega meðferð hjá meiri hl. framsóknarmanna hér á þingi, og hefir síðan verið fætt og uppalið á því stóra kærleiksheimili. Mun því erfitt um að þoka úr þessu. En þó vil ég enn vona það, að augu manna opnist svo fyrir hinum mörgu og stóru göllum, sem á frv. þessu eru, að úr þeim verði reynt að bæta svo sem unnt er, með kosningal. þeim, sem samin verða nú á þinginu.

Um leið og ég skírskota til þess, er ég sagði á síðasta þingi um þetta frv., læt ég mér lynda þá afgreiðslu, sem því er fyrirbúin, án þess að fara frekari orðum um það nú. En rétt minn geymi ég um að ræða nánar um galla þess, þegar kosningalagafrv. verður hér til umræðu.