27.11.1933
Efri deild: 20. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í D-deild Alþingistíðinda. (1070)

62. mál, varnir gegn landbroti af Þverá

Flm. (Jónas Jónsson):

Þessi þáltill. fer ekki fram á neina nýja fjárveitingu og átti því að duga um hana ein umr. Till. gengur út á það aðeins að skýra nokkurn skoðanamun, sem komið hefir fram milli vegamálastjóra annarsvegar, sem haft hefir með höndum yfirstjórn þessara landvarna, og bændanna í Fljótshlíðinni hinsvegar um það, hvernig skilja beri ákvæði í lögunum um þessar varnir frá þinginu 1932. Í umr. um næsta mál á undan í dag á dagskránni hefir hæstv. atvmrh. skýrt þetta mál frá sjónarmiði vegamálastjóra og haldið því fram, að þær varnir, sem framkvæmdar hafa verið þarna í Fljótshliðinni síðastl. sumar, heyri ekki undir aðalákvæði laganna, en þetta er rangt, því þar er beint tekið fram, að ákvæðin eigi við varnir gegn ágangi hverar frá Hlíðarenda og inn að Flótsdal og að á því svæði eigi ríkissjóður að greiða 7/8 hluta kostnaðarins. Þessum skilningi halda hlutaðeigandi bændur fram, en vegamálastjóri hefir aftur haldið því fram, að bændurnir eigi að greiða 1/4 kostnaðarins. Ég er ekki í neinum vafa um það, að vegamálastjóri hefir þarna öldungis rangt fyrir sér. Í öðru lagi er það, ef hans skilningur væri réttur, þá væru lögin þýðingarlaus, með því óhugsandi er, að hlutaðeigandi bændur geti lagt fram 1/4 alls kostnaðarins við þessi varnarmannvirki, og mundi það hví þýða það, að ekkert gæti orðið úr framkvæmdum. Þverá er svo gífurlegt vatnsfall og ásókn hennar á landið svo stórfelld, að það þýðir ekkert að ætlast til þess, að bændurnir geti kostað nauðsynlegar varnir að 1/4 hluta.

Ég þykist nú ekki síður en vegamálastjóri vita, hvað meint er með lögunum um varnir gegn landbroti Þverár frá 1932. Ég var þá á Alþingi og einnig í þeirri stjórn, sem bar frv. fram, og það var þá á allra vitorði, að lögin áttu að ná til hverskonar varna, sem heppilegastar teldust gegn ágangi Þverár á sléttlendið í Fljótshlíðinni. Það þýðir ekki að ætla þessum fáu bændum, sem þarna eiga hlut að máli, að kosta varnirnar að svo miklu leyti sem vegamálastjóri vill vera láta, ekki sízt þegar útlit er fyrir, að Þverá ætli að sópa landinu burt svo að segja í einni svipan, því það þýði ekki annað en það, að áin fengi að fara sínu fram. Ég held því, ef það er meining stj. og vegamálastjóra að krefjast svona mikils framlags frá bændunum þvert ofan í yfirlýstan bókstaf laganna, þá sé ekki úr vegi, að Alþingi staðfesti vilja sinn í þessu efni með því að samþ. þessa þáltill. Það væri alveg eins hægt fyrir vegamálastjóra að halda því fram og standa fast á því, að hvítt væri svart og svart væri hvítt eins og að segja, að Alþingi hafi ætlazt til, að bændurnir borguðu 1/4 kostnaðarins í staðinn fyrir 1/8, eins og lögin mæla fyrir, og meira að segja, hæstv. atvmrh. hefir fallizt á þessa skoðun vegamálastjóra. Ég tel því alveg sérstaka nauðsyn á, að Alþingi láti hér vilja sinn glögglega í ljós, því það verður að teljast mjög óheppilegt, ef vegamálastjóri ætlar að fara að umhverfa glöggum lögum frá Alþingi, þegar til framkvæmdanna kemur.