27.11.1933
Efri deild: 20. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í D-deild Alþingistíðinda. (1071)

62. mál, varnir gegn landbroti af Þverá

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Ég ætla að taka það fram viðvíkjandi þeirri vinnu, sem þegar hefir verið unnin þarna austur frá, að kostnaðinum hefir verið skipt með samkomulagi við hlutaðeigandi bændur, þannig að þeir hafa skuldbundið sig til að greiða 1/4 hluta og þegar greitt sinn hluta að mestu samkv. þeim samningi. Án þess að ég ætli að fara út í lagaskýringar eða kappræður um skilning laganna, þá var það álit vegamálastjóra, sem vann að smíði laganna, að smærri aðgerðir eins og þær, sem unnar voru síðastl. sumar, heyrðu ekki undir ákvæðin um 7/8 kostnaðar úr ríkissjóði, heldur gæti sá samningur, sem gerður var um þetta áður en verkið var hafið, fyllilega samrýmzt lögunum, sem sé að 3/4 kostnaðar greiddust úr ríkissjóði móti 1/4 frá bændunum eða sýslufélaginu.

Það er álit margra, að ákvæðin um þátttöku ríkjssjóðs að 7/8 hlutum í kostnaði við varnir innan við Hlíðarenda séu miðuð við það, ef byggður yrði fullkominn varnargarður, sem breytti farvegi árinnar, annaðhvort út frá Streytu eða Háamúla, en að smærri varnir á þessu sama svæði heyrðu undir ákvæðin um 3/4 kostnaðar úr ríkissjóði og 1/4 frá bændum eða sýslu. Ef Alþingi fer nú að slá því föstu, að hverskonar aðgerðir á þessu svæði greiðist að 7/8 hlutum úr ríkissjóði, þá er það auðvitað á þess valdi og ábyrgð, en sem sagt, það liggja fyrir samningar um það, sem búið er að gera, og ég verð að segja, að þess var ekki vænzt, þegar ég gerði þá samninga, að seinna yrði gerð tilraun til að rifta samningum og heimtuð endurgreiðsla á því, sem þegar er greitt. Annars verð ég að telja þá skýringu á lögunum ekki liggja fjarri, að greiðsluákvæðin um 7/8 úr ríkissjóði eigi við hin dýrari og varanlegri mannvirki, en síður við minni varnarvirki eða bráðabirgðaaðgerðir. Ég tel mál þetta svo skylt því máli, sem rætt var næst á undan þessu og afgr. til fjvn., að ég vil telja heppilegt að fresta þessari umr. og láta till. fara til sömu n., því þó hér sé ekki um nýja fjárveitingu að ræða, þá hefir tillagan, ef samþ. verður, í för með sér ný og aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.