27.11.1933
Efri deild: 20. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í D-deild Alþingistíðinda. (1073)
62. mál, varnir gegn landbroti af Þverá
Flm. (Jónas Jónsson):
Ég ætla að gefa þær upplýsingar frá undirbúningi þessa máls, að það er rétt hjá hæstv. ráðh., að vegamálastjóri og aðrir, sem fjölluðu um málið, þegar lögin voru samin, gerðu ráð fyrir því, að síðar mundi verða gerður stór garður fram af Háamúla, sem veitti Þverá alveg frá Fljótshlíðinni, en það mannvirki er afardýrt og liggur tæpast fyrir í næstu framtíð, en verður vonandi síðasti liðurinn í því verki, sem þegar er hafið, og ég tel næsta mikið vafamal, hvort hægt verður að gera ráð fyrir, að hlutaðeigandi bændur eða sýslan geti einu sinni greitt 1/8 af kostnaði við það verk. En það má ómögulega blanda því verki saman við það, sem lögin frá 1932 voru sett um. Í næstu framtíð er ekki um annað að ræða en að halda anni frá landinu, meðan ekki er hægt að raðast í að veita henni í nýjan farveg. Þegar lögin voru sett, var það ljóst, að þetta verk þoldi enga bið, og lögin voru sett með tilliti til skjótra aðgerða, en ekki aðeins vegna framtíðarstórvirkis. Það kom í ljós, þegar verið var að vinna verkið, að hentugast var að byggja marga smágarða, en vitanlega er það í sömu aðstöðu gagnvart ákvæðum laganna frá 1932. Hæstv. ráðh. hefði því getað tekið dýpra á árinni, er hann sagðist hafa talið sig hafa heimild til að greiða úr ríkissjóði 3/4 kostnaðarins, því honum bar skylda til að borga 7/8 kostnaðarins úr ríkissjóði. Hann var að tala um, að hann hefði samið við bændurna um að greiða 1/4 kostnaðarins. Það er nú tæplega, held ég, hægt að kalla það samninga. Það þýðir lítið að deila við dómarann. Bændunum var nauðugur einn kostur að ganga að því, sem upp var sett. Annarsvegar var ráðunautur ríkisstj. ósveigjanlegur, en hinumegin sækir hvera á landið. Hér voru alveg sérstakar kringumstæður og því ekki um venjulegt samkomulag að ræða. Annaðhvort var að láta ána brjóta niður þetta fagra og góða land eða þá að ganga að hinum hörðu og röngu kostum, enda þurftu bændur hart að sér að leggja með gjafa- og sjálfboðavinnu.
Ég skal taka það fram, að það er ekki meining þessarar þáltill. að raska þeim samningum, sem gerðir hafa verið um það verk, sem þegar er unnið. Þess vegna þarf ekkert að tala um endurgreiðslu á því, sem bændurnir þegar hafa lagt fram, heldur er það tilgangurinn, að stj. hafi í þessari heimild tvímælalausa heimild fyrir því, hvernig eigi að skilja bókstaf þeirra laga, sem um er deilt, og geti látið eins og vind um eyru þjóta skilning annara manna, sem telja sig hafa undirbúið þessi lög, en langar til að brjóta þau. Vegna þess að þál. á ekki að verka aftur fyrir sig, heldur aðeins í framtíðinni, sé ég ekki ástæðu til þess, að hún fari til n., og því tel ég ekki heldur þurfi að fresta umr. þessari.