23.11.1933
Neðri deild: 17. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í C-deild Alþingistíðinda. (1082)
52. mál, varðskip landsins
Flm. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.):
Eins og grg. ber með sér, er mikill munur á launakjörum yfirmanna á varðskipum ríkisins annarsvegar og strandferðaskipum ríkisins og Eimskipafélagsskipunum hinsvegar. Munur þessi er svo mikill, að ólíklegt er, að jafngóðir menn muni veljast í stöðurnar á þessum skipum öllum.
Hér liggur fyrir umsókn frá yfirmönnum varðskipanna um, að launakjör þeirra verði færð í samræmi við það, sem er á skipum Eimskipafélagsins og öðrum eimskipum. Eina breytingin frá gildandi l. er sú, að stýrimenn, vélstjórar, fullgildir hásetar, kyndarar og aðrir skipverjar skuli hafa sömu laun og gerist á strandferðaskipum ríkisins. Það sama er látið yfir alla ganga, að undanteknum skipherra, líka háseta og kyndara, og er þetta eðlilegast, svo að hv. þm. geta eflaust fallizt á það. Þá er þess og getið, að starfsmenn á varðskipunum skuli njóta sama réttar til eftirlauna og aðrir embættismenn, enda greiði þeir árlegt gjald í lífeyrissjóð.
Að því er snertir matsveina, bryta og loftskeytamenn, er enginn samanburður gerður um launakjörin, enda held ég, að þar sé ekki um mikinn mun að ræða.
Ég leyfi mér að leggja til, að frv. verði að lokinni umr. vísað til fjhn.