17.11.1933
Neðri deild: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í D-deild Alþingistíðinda. (1089)

25. mál, talstöðin í Papey

Flm. (Eysteinn Jónsson):

Ég hefi ekkert á móti því, að málinu verði vísað til n. — Fjarri fer því, að ég hafi sagt, að beitt hafi verið harðræði í þessu máli. Það er laukrétt hjá hæstv. dómsmrh., að bóndanum hefir verið boðin stöðin til leigu, en ekkert hefir enn af samningum orðið. Þess vegna er ég hræddur um, að ekkert samkomulag náist fyrir vetrarvertíð, og hefi ég af þeim ástæðum komið fram með þessa þáltill., svo að tryggt væri, að stöðin yrði starfrækt.