04.12.1933
Neðri deild: 25. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í C-deild Alþingistíðinda. (1090)
52. mál, varðskip landsins
Halldór Stefánsson:
Ég hefi skrifað undir nál. með fyrirvara. Fyrirvarinn liggur ekki í því, að ég fallist ekki á meginástæður nál., þær, að samræmi eigi að vera í launum háseta á varðskipum og strandferðaskipum. Fyrirvarinn hnígur að því, er fram kemur í brtt. minni á þskj. 233. Get ég verið stuttorður um þessa brtt., því að bæði hv. frsm. n. og hv. þm. V.-Húnv. hafa minnzt á hana og að öllu leyti sagt rétt frá.
Menn hafa tekið eftir því, að í grg. við frv., sem fer þó fram á, að laun yfirmanna á varðskipum séu söm og á strandferðaskipum ríkisins, er þó ekki miðað við strandferðaskipin, heldur skip Eimskipafélagsins. Nú fékk n. upplýsingar um það hjá útgerðarstj. strandferðaskipanna, að kaup yfirmanna er þar hærra en hjá Eimskipafél. Ástæðan er sú, að það er gömul og ný venja að greiða yfirmönnum á strandferðaskipum sérstaka kaupuppbót vegna aukaerfiðleika, er þeir hafa. Eftir því sem framkvæmdastjóri strandferðaskipanna sagði, nemur hún 10% af kaupi stýrimanna og 8% af kaupi vélstjóra. Eins og málið er rökstutt í grg., held ég, að aldrei hafi verið meining yfirmanna eða Vélstjórafélagsins að fara fram á hærra kaup en Eimskipafél. greiðir. En ef frv. yrði samþ. óbreytt, þá fengju þeir sama kaup og greitt er á strandferðaskipunum, að meðtalinni þessari strandferðauppbót. Til þess að taka af allan vafa um það, að svo eigi ekki að vera, bar ég fram brtt. mína. Annaðhvort er ekki sérstök ástæða til þessarar uppbótar, eða þá að það er ekki rétt að greiða yfirmönnum á varðskipum jafnmikið og á strandferðaskipunum að viðbættri þessari uppbót.
Nú gæti, eins og hv. frsm. tók fram, komið til mála að miða þetta í texta frv. við Eimskipafélagsskipin, en þar sem ríkið ræður ekki yfir kaupgjaldi á þeim, er það ekki fært. En þá er líka rétt að samþ. brtt. mína.
Hv. þm. V.- Húnv. bar fram brtt. við mína till. um að draga frá 25%. kaupsins, þegar skipin liggja í höfn. Ástæðunni hefir hann lýst, en hún er sú, eftir því sem forstjóri ríkisskipaútgerðarinnar hefir sagt, að þessi kauplækkun hefir verið framkvæmd á strandferðaskipunum, þegar þau hafa ekki verið í förum. Veit ég ekki, hvort fyrir þessu er lagaheimild, en það hefir orðið samningsmál. Ef kjörin eru gerð sambærileg á þessum skipum, ætti það að koma af sjálfu sér, að skipsmenn varðskipanna hlíttu sömu reglum um þetta og þeir á strandferðaskipunum. Gæti þetta þó orkað tvímælis, ef það er ekki tekið fram. Mun ég því samþ. till. hv. þm. V.-Húnv., þó að hún sé ekki beinlínis nauðsynleg.
Ef brtt. mín verður ekki samþ., þykir mér nauðsyn þessa mals ekki svo mikil eða brýn, að það megi ekki bíða næsta reglulegs þings.