04.12.1933
Neðri deild: 25. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í C-deild Alþingistíðinda. (1092)
52. mál, varðskip landsins
Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:
Ég þakka n. afgreiðslu frv., en um brtt. á þskj. 233 og hina skrifl. brtt., frá hv. 2. þm. N.-M. og hv. hm. V.- Húnv., verð ég að segja þetta: Ég sé ekki betur en að till. hv. þm. V.- Húnv. sé óþörf. Hygg ég, að hann muni fallast á það, ef hann kynnir sér frv. eins og það er orðað. Hún segir, að lækka megi laun um 25%, þegar varðskipin liggi í höfn, eins og gert sé á strandferðaskipum ríkisins. Veit ég ekki, hvernig þessu er þar háttað, en ég geri ráð fyrir, að þetta sé rétt með farið hjá hv. þm. Í 2. málsgr. 1. gr. frv. segir:
„Kaupgreiðslur til stýrimanna, vélstjóra, fullgildra háseta, kyndara og annara skipverja skulu hafðar í samræmi við slíkar greiðslur á strandferðaskipum ríkisins“.
Við þetta er engu að bæta. Ef svona er, sem hv. þm. segir, á strandferðaskipunum, þá á það eftir frv. að vera eins á varðskipunum. Annars gæti þetta sérstaklega fram tekna ákvæði verið einskonar bending til stj. um að spara með því að láta varðskipin liggja sem mest inni.
Um till. hv. 2. þm. N.-M. er svipað að segja. Ég verð að játa, að mér er ekki kunnugt um, hvað meint er með þessari sérstöku strandferðauppbót. Veit ég ekki, hvort hún er samningsatriði eða eitthvað annað. Er mér nær að halda, að henni sé bætt á með sérstökum samningi með tilliti til yfirvinnu yfirmanna, er þeir hafa á höfnum. Veit ég ekki, hvort samanburðurinn á laununum í bréfi stýrimanna og Vélstjórafélagsins tekur tillit til þessa eða ekki. Ég sé því ekki nokkra ástæðu til að samþ. brtt. þessa hv. þm., því að orðalag frv. er í þessu efni fullskýrt. Að sjálfsögðu verður þess gætt, þegar gengið verður frá samningum, að fullt samræmi verði haft á þessum launagreiðslum, eins og tekið er fram í frv.
Viðvíkjandi því, sem hv. þm. nefndi um aðra skipverja, vil ég endurtaka það, sem ég sagði við 1. umr. þessa máls, að breyt., sem farið er fram á í frv., að gerð verði á gildandi l., á einungis við yfirmenn skipanna aðra en skipstjóra, því að kjör háseta og kyndara á varðskipunum eru nú þegar í samræmi við launagreiðslur slíkra manna á strandferðaskipunum. En á launum skipherra er engin breyt. gerð í frv. frá gildandi lögum.
Mér er ekki fullkunnugt um, eftir hvaða reglum launauppbót sé, sem hv. 2. þm. N.-M. talaði um, að greidd væri yfirmönnum á strandferðaskipunum, er greidd. En ég geri ráð fyrir, að hún miðist við þá aukavinnu, sem þeir hafa vegna hinna mörgu viðkomustaða og tíðu ferða út og inn á hafnir. Ef um svipað eða hliðstætt kynni að vera að ræða hjá yfirmönnum varðskipanna, þá geri ég ráð fyrir, að líka verði að taka tillit til þess.