29.11.1933
Neðri deild: 22. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í D-deild Alþingistíðinda. (1096)
25. mál, talstöðin í Papey
Gísli Sveinsson:
Ég viðurkenni, að þau rök, sem hv. frsm. hefir nú fært fram, eru í fullu gildi einnig frá okkar hálfu, sem höfum skrifað undir nál. með fyrirvara. En við teljum í fyrsta lagi, að í óþarflega mikið sé ráðizt að forminu til að koma fram með þáltill. um þetta mál, og í annan stað álitum við rétt að afgr. málið á einfaldari hátt. Það er vitað, að starfræksla við þessa stöð er mjög einföld, og það hefir komið fram, að bóndinn í Papey er alls ekki frá því að taka að sér starfrækslu stöðvarinnar an endurgjalds. Það eina, sem hann vill ekki taka að sér, er viðhald stöðvarinnar, og hann vill ekki bera ábyrgð á gangi hennar að því leyti. Um þetta hafa komið skjöl fyrir ráðuneytið, og ég veit ekki letur en ráðuneytið hafi ætlað sér að skerast í þetta mál og greiða fram úr því. Við þetta stendur nú og hér er ekki við aðra að eiga í þessu sambandi. Landssíminn hafði með þetta mál að gera, og samkomulagið brast þar á mjög litlu og auðveldu atriði. Veðurstofan er ekki komin inn í málið enn, en nú er svo komið, að telja má auðvelt að fá hana til að kosta þarna fullkomna veðurathugun. þess vegna getur þessi till. haft tvöfalda þýðingu, fyrir utan það hagræði, sem Papeyjarbóndinn hefir af stöðinni, þar sem hann fær þarna stöðugt talsamband við land, en það er í notum þess, að hann vill taka að sér skeytasendingarnar endurgjaldslaust, en að sjálfsögðu ekki veðurathuganir án endurgjalds, en fyrir þær mun veðurstofan greiða þóknun eins og við aðrar veðurathugunarstöðvar.
Till. okkar þriggja, sem skrifuðum undir með fyrirvara, er með þessum rökum og að öðru leyti með tilvísun til þess, sem fram hefir komið, að þessari þáltill. verði vísað til stjórnarinnar.