04.12.1933
Neðri deild: 25. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 120 í C-deild Alþingistíðinda. (1097)

52. mál, varðskip landsins

Frsm. (Jakob Möller):

Ég er sömu skoðunar og hv. þm. Seyðf. um það, að þessar brtt., sem fram hafa komið við frv., muni vera óþarfar. En ég vildi taka það fram, að þó að þær yrðu felldar, þá tel ég ekki rétt að skilja það svo, að það megi fyrir því alls ekki haga framkvæmd þeirra mála, sem þær fjalla um, eins og þar er gert ráð fyrir. Ég geri ráð fyrir, að það verði látið gilda, sem í frv. segir um að kaupgreiðsla til starfsmanna þeirra á varðskipunum, sem taldir eru upp í frv., verði hagað eins og kaupgreiðslu til starfsmanna á strandferðaskipunum, jafnvel þótt till. hv. þm. V.-Húnv. verði felld. Og eins er það um strandferðauppbótina, að ef það er rétt, að hún sé gerð með sérstökum samningum og hún miðuð við eitthvert sérstakt starf, þá mundi það heldur ekki ná til starfsmanna varðskipanna, jafnvel þótt svo færi, að brtt. hv. 2. þm. N.-M. yrði felld.

Viðvíkjandi því, sem hv. þm. A.-Húnv. sagði um það, að þegar nýjar launastöður væru myndaðar af ríkinu með hærri launum en greidd hefðu verið hliðstæðum starfsmönnum við eldri stofnanir, þá væri alltaf farið þessa sömu götu, að hækka laun hjá hinum eldri til samræmis við nýrri stofnanirnar, — viðvíkjandi því vil ég taka það fram, að þegar ríkið stofnar samskonar fyrirtæki sem einstaklingar hafa áður stofnað, þá á þetta við og þá verður þetta að vera svo, því að annars fengi ríkið lakari starfsmenn en þessi einstaklingsfyrirtæki. Hv. hm. má ekki miða till. sínar í þessu efni við það vandræðaástand, sem nú er. Það getur verið, að í svipinn, nú á þeim erfiðleikatímum, sem yfir standa, sé hægt að fá nóga menn og góða til þessara starfa. En við megum bara ekki miða við slíkt ástand, sem nú er. Þegar setja á l. um launagreiðslur, sem gilda eiga fyrir framtíðina, þá verður að ákveða þau þannig, að miðað sé við ástandið eins og það er bezt, svo að ríkisfyrirtækin verði samkeppnisfær einnig þegar bezt gengur atvinnurekstur. Ef miðað er við okkar vandræðatíma í atvinnumálum í þessu efni, þá mundi það óhjákvæmilega leiða til þess, fyrr eða síðar, að beztu starfsmennirnir færu eitthvað annað, en hjá ríkisstofnununum yrði eftir úrkastið. En slíkt má alls ekki koma fyrir. Það er því á fullum rökum byggt, sem um það hefir verið sagt, að þetta misræmi þurfi að leiðrétta.