29.11.1933
Neðri deild: 22. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í D-deild Alþingistíðinda. (1099)

25. mál, talstöðin í Papey

Eysteinn Jónsson:

Það, sem var fyrir mér aðalatriðið með þessari till., var það, að tryggt verði, að þessi stöð verði rekin á næstu vertíð, og svo vitanlega áfram, en ég geri ráð fyrir, að samningar milli veðurstofunnar og annara aðila um þetta mál geti ekki komizt á fyrir vertíð. Þess vegna flyt ég till., svo að stöðin verði rekin með einhverju móti, og legg ég því áherzlu á, að till. verði samþ., og vænti, að stj. sjái svo um, að stöðin verði rekin á komandi vertíð, jafnvel þótt ekki verði unnt, að komast að samningum, hvernig þessu skuli fyrir komið.