29.11.1933
Neðri deild: 22. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í D-deild Alþingistíðinda. (1101)
25. mál, talstöðin í Papey
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Ég skil tæpast, að ekki sé hægt fyrir næstu vertíð að komast að samningum við Papeyjarbóndann um að gera veðurathuganir og senda veðurskeyti á hverjum degi. (EystJ: Það er nú ekki langur tími, vertíðin byrjar í byrjun febrúar.) Nei, en það er alveg eins erfitt, þó að þál. verði samþ., og ég hélt, að hv. þm. ætlaðist ekki til, að með samþ. þessarar till. ætti að koma stjórninni í bobba með því að biðja hana að framkvæma eitthvað, sem væri ómögulegt. Það er ekki hyggilegt vegna samninganna við bóndann í Papey að fyrirskipa stj., að þetta skuli gert, því að það gefur bóndanum möguleika til að setja kröfur sínar miklu hærra, og það átti ég einungis við, þegar ég lagði til, að till. yrði vísað til stj. En hv. d. kærir sig víst ekkert um þetta, og skal ég þá ekki fast neitt um það.
Þar sem regluleg veðurathugunarstoð getur ekki komið fyrr en síðar, er ekki um annað að ræða en dagleg veðurskeyti. Sú reynsla, sem á talsamband við eyna er komin, bendir ekki á mikla notkun, því ef ég man rétt, hafa ekki það hálft annað ár, sem stöðin hefir verið í gangi, átt sér stað nema eitthvað 4 til 5 samtöl. Það má vel vera, að notkunin hefði orðið meiri síðar, en þessi litla notkun olli því, að landssímastjóri áleit, að ekki væri mikil þörf fyrir þessa stöð. Náttúrlega er allt öðru máli að gegna, ef veðurstofan vildi setja þarna upp stöð til veðurathugana með vorinu. Þá skal ég með ánægju vinna að því, að stöðin starfi á næstu vertíð.