04.12.1933
Neðri deild: 25. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í C-deild Alþingistíðinda. (1105)

52. mál, varðskip landsins

Hannes Jónsson [óyfirl.]:

Það er aðeins örstutt aths. Um launaákvörðun, við hvað hana eigi að miða í sambandi við gengi atvinnuveganna í landinu, er ég ósamþykkur þeim báðum, hv. þm. A.-Húnv. og hv. 1. þm. Reykv. Annar segir, að þær ákvarðanir beri að miða við ástandið eins og það er nú, en hinn segir, að miða eigi við ástandið eins og það geti verið allra líflegast og þegar mestir möguleikarnir eru fyrir einstaklingsframtakið. En þessar launagreiðslur eiga auðvitað að miðast við nokkurn veginn „normalt“ ástand. Það leiðir til þess, að greiðslurnar geta stundum orðið minni og á öðrum tímum meiri en í réttu hlutfalli við möguleika til atvinnu í landinu.

Það, sem hér skiptir máli, er, hvort menn óska, að það skipulag, sem tekið hefir verið upp í launagreiðslum til starfsmanna við strandferðaskipin, verði tekið upp viðkomandi varðskipunum eða ekki. Hv. þm. Seyðf. vill þetta ekki. Þess vegna vill hann ekki auka möguleikana til þess, að þetta fyrirkomulag geti haldizt, sem ég geri till. um með brtt. minni.