23.11.1933
Neðri deild: 17. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í C-deild Alþingistíðinda. (1113)
60. mál, hafnarlög fyrir Ísafjörð
Flm. (Finnur Jónsson):
Þetta frv. var flutt hér á síðasta þingi eftir till. hafnarn. Ísafjarðar. Að þessu sinni er ekki farið fram á fjárveitingu til að koma upp fiskibátahöfn og dýpka innsiglinguna, þó að vitanlega liggi fyrir að gera það seinna og frv. sé borið fram með tilliti til þess. Frv. miðar að því að samræma hafnarlög Ísafjarðar við önnur hafnarlög, sem hv. Alþingi hefir afgr. hin síðari árin. Sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta mál, en mælist til þess, að því verði vísað til 2. umr. og sjútvn.