28.11.1933
Efri deild: 21. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í D-deild Alþingistíðinda. (1115)

75. mál, sala innanlands á landbúnaðarafurðum

Forseti (EÁrna):

Mér hafa borizt tvær skrifl. brtt. við þessa þáltill. Önnur er frá hv. 3. landsk. og hljóðar svo:

„Í stað orðanna „og Mjólkurbandalags Suðurlands“ komi: Mjólkurbandalags Suðurlands og Kaupfélags Borgfirðinga“.

Hin till. er frá hv. 4. landsk., svo hljóðandi:

„Tillgr. orðist svo:

Efri deild Alþingis skorar á ríkisstjórnina að skipa 3 manna nefnd ólaunaða, til að undirbúa fyrir næsta þing frumv. um skipulag á sölu landbúnaðarafurða innanlands, svo framarlega sem Samband ísl. samvinnufélaga, Sláturfélag Suðurlands og Mjólkursamlag Suðurlands vilja leggja til, hvert um sig, einn mann í nefndina“.

Til þess að till. þessar geti komizt hér að til umr. og atkvgr., verður að leita afbrigða frá þingsköpum.