11.11.1933
Efri deild: 7. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í C-deild Alþingistíðinda. (1143)
11. mál, ritsíma og talsímakerfi Íslands
Flm. (Ingvar Pálmason):
Ég flyt hér frv. á þskj. 12, sem að sumu leyti er aðeins breyt. á gildandi símalögum, þannig að farið er fram á tilfærslu á því, hvernig lína verði lögð, sem þegar er komin inn í símalögin. Og um leið hefi ég notað tækifærið til þess að fara fram a, að ný lína verði tekin upp í lögin. Í grg. frv. er því nokkuð lýst, hverjar ástæður liggja til þess, að farið er fram á, að Dalatangaviti komist í símasamband við Brekku í Mjóafirði, en ekki eins og ráðgert er í símalögunum við Skálanes við Seyðisfjörð. Til viðbótar því, sem fram er tekið í grg., vil ég benda á það, að þessi lína liggur mjög utarlega, eins og mörgum mun kunnugt. Hún liggur út á næstyzta tanga Austfjarða. Ef línan yrði lögð yfir fjallgarðinn um Seyðisfjörð að Dalatanga, þá mundi verða mjög mikil ísingarhætta á því svæði. Það mundi einnig verða nokkur ísingarhætta, þó hin leiðin yrði farin, en hún yrði þó miklu minni, vegna þess að þá liggur línan meðfram sjó.
Ég geri ráð fyrir, að hæstv. Alþingi finnist ekki nein ástæða til að halda því fast fram, að þessi lína verði lögð yfir þennan fjallgarð, og gangi því að athuguðu máli að brtt. minni. Ég tel því ekki ástæðu til að fjölyrða mikið um þessa brtt.
Aftur á móti vil ég taka það fram um hina brtt., þar sem farið er fram á að bæta við nýrri línu frá Neskaupstað til Sandvíkur, að fyrir henni er mjög mikil þörf. Hún á að liggja, eins og drepið er á í grg., til tveggja verstöðva, Barðsness og Sandvíkur. Þessar verstöðvar hafa verið taldar þær fiskisælustu á Austfjörðum fyrir smábáta. Það hefir í mörg ár verið svo og verður sjálfsagt meðan róðrarbátunum er viðhaldið, að menn úr Neskaupstað hafa legið við í Sandvík yfir sumarmánuðina, og sú viðlega hefir lukkazt vel, að undanteknum þeim erfiðleikum, sem stafa af símasambandsleysinu milli þessara staða, og vegalengdin á sjó er nokkuð mikil, um 8-9 sjómílur, og er yfir röst að fara, sem oft er mjög slæm yfirferðar.
Ég skal geta þess, að síðastl. sumar var meðal annara báta, sem lágu við í Sandvík, einn róðrarbátur með 2 mönnum og annar var unglingur —, sem veiddi í 5 vikur 35 skpd. af fiski. Af þessu sjá allir, hversu hagkvæmt það er fyrir fátæka menn að geta átt kost á að stunda aflabrögð þarna. Þess má einnig geta, að föst byggð er þarna í víkinni, 3 bæir, og er þar að miklu leyti stundaður landbúnaður, því á seinni árum er mannfæðin orðin svo mikil, að þeir geta að mjög litlu leyti notað sér aflann.
Ég skal geta þess, að á síðasta hausti var þessi lína mæld upp af Brynjólfi Eiríkssyni verkstjóra á Seyðisfirði, og mældist hún vera rúmir 20 km.
Ef þessi lína yrði lögð, kæmust einnig í símasamband 2 afskekktar sveitir, sem að vísu eru ekki fjölmennar, Viðfjörður og Hellisfjörður. Allir, sem farið hafa meðfram Austfjörðum, sjá fljótt, hverjir samgönguerfiðleikar eru á landi, og þeir, sem kunnugir eru veðráttufarinu, geta líka skilið, að oft eru samgöngur á sjó alveg bannaðar, þó innanfjarðar sé.
Ég held því, að margar stoðir renni undir þá sanngirniskröfu, að þessi lína verði tekin í símalögin og að það megi teljast fyllilega tímabært að bera þá kröfu fram nú. Og þó þetta sé aukaþing, þá tel ég samt sem áður, að sinna beri slíku máli sem þessu, og vænti því, að hæstv. Alþingi taki brtt. mínum vel.
Ég tel eðlilegast, að máli sem þessu sé vísað til samgmn., og legg því til, að því verði vísað þangað, að þessari umr. lokinni.