20.11.1933
Efri deild: 14. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í B-deild Alþingistíðinda. (115)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Frsm. (Jón Baldvinsson):

Það er einróma till. n., að þetta frv. um breyt. á stjskr. frá 18. maí 1920 verði samþ. Það gefur ekkert tilefni til umræðna. Það er ekki ætlazt til, að á því verði nein breyt. gerð, heldur að þetta þing samþ. það nú eins og gengið var frá því á síðasta hv. Alþ. og samkomulag er um á milli flokkanna. Frv. verður væntanlega bráðlega samþ. sem lög, sem komast þá til framkvæmda. Á móti þessu frv. hefir ekki heyrzt nema ein rödd í þinginu, þ. e. í Nd. Hér í d. er ekki þess að vænta, að hv. dm. vilji leggja stein í götu þess.