24.11.1933
Efri deild: 18. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í C-deild Alþingistíðinda. (1154)
11. mál, ritsíma og talsímakerfi Íslands
Eiríkur Einarsson:
Brtt. mín er ekki stórvægileg né margbrotin. Svo er ákveðið í símalögum, að símalína sé lögð upp í Gnúpverjahrepp, og ætti því að vera óþarfi að lögfesta, að sú lína næði að Ásólfsstöðum, sem eru þar í sveit. En Ásólfsstaðir liggja á hreppsenda, og væri það því að teygja lögin til hins ítrasta að skrá þau svo, að síminn ætti að liggja þangað. En einmitt af því, að Ásólfsstöðum er síminn mjög nauðsynlegur, álít ég lögfestingu á síma þangað æskilega.
Ástæðurnar fyrir brtt. minni eru þessar: Á Ásólfsstöðum hefir nýlega verið reist gott gistihús með ærnum kostnaði. Var orðin þar svo mikil gestkoma, að húsbóndinn, hinn mesti risnumaður, átti ekki nema um tvennt að velja: að hverfa af jörð sinni eða koma upp gistihúsi. Honum tókst, sem betur fór, hið síðara, með myndarlegri aðstoð hins opinbera. En til þess að gistihúsið geti notið sín, er sími bráðnauðsynlegur. Margir gestir leggja ekki út í að fara til Ásólfsstaða, af því þeir vita ekki nema þar sé húsfyllir eða vegir ófærir. Meðan sími er ekki lagður þangað tekur því ríkið aftur með annari hendinni það, sem það gaf með hinni. Ég vil líka minnast á annað merkilegt atriði í sambandi við þetta mál. Við túngarðinn á Ásólfsstöðum virðist vera hráefni til merkilegs framtíðariðnaðar. Það er vikur, sem farið er að nota til innveggjaklæðnaðar á steinsteypuhús, en til þess að flutningur á því geti notið sín sem skyldi, er nauðsynlegt að hafa síma til þeirra stöðva. Vegalengdin til núverandi næstu símastöðvar er 12 -13 km., og yrði það línulengdin. Nokkrir aðrir bæir myndu njóta góðs af. Bærinn Ásólfsstaðir liggur hið næsta Sprengisandsvegi, og er gott og nauðsynlegt, að símalínan nái að síðasta áfangastað áður en lagt er á fjallveginn, eða til hins fyrsta, er að norðan kemur. Samgmn. vill styðja þetta mál, og landssímastjóri er því hlynntur, svo að ég tel því vísan framgang á Alþingi, ef nokkur breyting verður gerð á símalögunum.