24.11.1933
Efri deild: 18. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í C-deild Alþingistíðinda. (1155)
11. mál, ritsíma og talsímakerfi Íslands
Einar Árnason:
Ég flyt hér eina litla brtt. við frv. og ætla að láta örfá orð fylgja henni til skýringar. Þessi brtt. er um það, að bæta við einni landssímastöð í Öngulsstaðahreppi til viðbótar við þá einu, sem þar er fyrir. Svo hagar til í Eyjafirðinum, að Öngulsstaðahreppur liggur meðfram hlíðinni austan Eyjafjarðarár, en landssímalínan liggur fram fjörðinn að vestan og kemur þess vegna að meiri notum þeim megin. Hinsvegar hefir verið lögð ein þverlína austur yfir ána og landssímastöð sett á Öngulsstöðum, en sú stöð er því sem næst á öðrum enda Öngulsstaðahrepps, en hreppurinn er allur milli 20 og 30 km. á lengd. Allur norðurhluti þessa hrepps hefir því mjög lítil not af þessari línu.
Það, sem ég fer fram á í brtt., er, að sett verði upp önnur stöð norðan við miðju hreppsins, sem þægileg væri fyrir norðurhluta hreppsins til afnota. Þetta mundi kosta eitthvað h. u. b. 6 km. langa línu að setja stöðina á þann stað, sem ég tel heppilegastan, en það er á hvera í Öngulsstaðahreppi. Þar er þinghús hreppsins og aðalsamkomustaður. Það hefir þótt vera mjög til baga, hve þessi samkomustaður er langt frá símasambandi, því þar er lítið sem ekkert gagn að þeirri einu stöð, sem er í hreppnum.
Nú hefi ég sjálfur flutt brtt. á þskj. 148 við þessa aðalbrtt. á þskj. 54, sem ég nú hefi talað um. Þessi brtt. á þskj. 148 er um það, að fastbinda ekki till. um nýja stöð í Öngulsstaðahreppi við neinn vissan bæ, og flyt ég þessa till. fyrir það, að ég hefi heyrt sagt, að landssímastjóri telji það óhentugt að binda með lögum, að stöðvar skuli vera á ákveðnum bæjum. Þetta get ég vel skilið. Ég legg ekkert kapp a, að það sé sett í lögin, að stöðin skuli vera á Þverá, af því ég efast ekkert um, að þar muni hún verða. Sem sagt, þó að brtt. þessi verði nú samþ., þá kemur hún vitanlega ekki strax til framkvæmda fremur en ýmsar aðrar símalínur, sem komnar eru inn í lögin. — Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um þessa litlu brtt. Vilji hv. dm. sinna henni, þá hygg ég réttara, að fyrst verði samþ. brtt. við hana á þskj. 148.