22.11.1933
Neðri deild: 16. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í D-deild Alþingistíðinda. (1164)
40. mál, útrýming fjárkláðans
Flm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Af því ég hafði lesið í þingtíðindunum ummæli hæstv. atvmrh. um þáltill. á síðasta þingi í þessu máli, þar sem mér virtist hann lofa því, að stj. skyldi afla rækilegra gagna um útbreiðslu fjárkláðans, taldi ég ekki nauðsynlegt að taka ákvæði um það upp í þessa þáltill. (Atvmrh.: Sú till. var ekki samþ.). Já, en það voru ummælin, sem ég treysti á. En ég vil taka það fram, að ég vil helzt, að útrýmingarböðun fari fram um allt landið, ef það sýnist fært. Annars meinti ég, að landinu yrði skipt í útrýmingarsvæði, og að skiptin væru þar, sem væri hætt við, að fé gengi á milli, ef það sýndist fært, að fengnum rannsóknum, og ef dýralæknar litu svo á, að það væri tiltækilegt; því er það ekki hundið í till., hve stórt svæði eigi að taka fyrir næsta vetur.
Út af því, sem hv. þm. Borgf. sagði, að Það væri ekki nema trassaskapur, ef ekki væri hægt að halda niðri kláða með þrifaböðun, þá vil ég taka fram, að ég held, að það sé nú svo margreynt, að það lánast ekki. Margur þrifamaðurinn hefir árangurslaust reynt að losna við fjárkláðann, og það menn, sem almennt er vitað um, að eru langt frá því að vera trassar.