28.11.1933
Neðri deild: 21. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í D-deild Alþingistíðinda. (1179)

40. mál, útrýming fjárkláðans

Frsm. (Jón Pálmason) [óyfirl.]:

Fyrir hönd landbn. er ég þakklátur hæstv. atvmrh. fyrir vingjarnlegar undirtektir undir þetta mál. En það er aðeins út af örfáum atriðum í ræðu hans, sem ég vil segja nokkur orð.

Ég tók svo til orða í minni fyrri ræðu, að n. ætlaðist ekki til meiri rannsóknar á útbreiðslu kláða en svo, að það yrði látin fara fram skoðun á öllu sauðfé á landinu á þessum vetri. Hvort það er gert seinni hluta eða fyrri hluta vetrar, skiptir ekki miklu máli, en ég held, að meiri hl. n. hafi naumast gert ráð fyrir, að hægt væri að framkvæma þessa skoðun fyrir áramót.

Þó að n. ætlist eigi til frekari rannsókna í þessu efni, er það alls ekki hugmynd hennar, eins og mér virtist hæstv. atvmrh. gefa í skyn, að hægt sé að gera algerlega tæmandi rannsókn á útbreiðslu fjárkláðans, enda er það í sjálfu sér ekki þýðingarmikið atriði, því að sú einfalda rannsókn, sem hér um ræðir, mun leiða í ljós, að hér er full þörf aðgerða.

En að því er snertir það, sem hæstv. atvmrh. tók fram, að hann mundi ekki fella sig við, að á rannsóknum og framkvæmdum væri byrjað án þess að fé yrði veitt í fjárl. til þeirra hluta, þá hefir n. ekki tekið afstöðu til þess, hvort unnt sé að framkvæma almenna böðun á næsta vetri, og verð ég að telja það dálítið vafasamt, en vissa er fyrir því, að engum okkar nm. dettur í hug, að það verði lagt í mikinn kostnað í þessu efni áður en samþ. verður fjárveiting í fjárl., sem afgr. verða á næsta þingi. En eins og málið stendur nú, er það þýðingarmesta atriðið frá mínu og n. sjónarmiði, að þær rannsóknir, sem getið er um í 2. lið till., verði framkvæmdar á fullkominn hátt, og ég veit, að hæstv. atvmrh. er það ljóst, að það er undirstöðuatriðið undir því, að árangur af þessari framkvæmd verði fullkominn.