24.11.1933
Neðri deild: 18. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í D-deild Alþingistíðinda. (1199)

59. mál, styrkingu Vestmannaeyjakaupstaðar til kaupa á dýpkunarækjum

Flm. (Jóhann Jósefsson):

Ef þess þykir þörf að vísa málinu til sjútvn., þá vil ég ekki mæla á móti því. Það er vitanlega ekki nema rétt, að n. athugi þær hliðar málsins, sem hv. þm. Borgf. minntist á. En satt að segja finnst mér liggja nógu mikið óafgr. af málum í sjútvn., þó þetta bætist ekki við.

Að því er snertir þá þörf, sem fyrir er í Vestmannaeyjum, þá hefir vitamálastjórn verið hún kunn fyrir löngu, og ég geri líka ráð fyrir því, að þegar vitamálastjórn samþ. að leigja Finnboga Rút Þorvaldsson til að fara utan m. a. í þessum erindum, þá sé það merki þess, að hún hefir verið samþykk því, að þessi leið væri farin að því er snertir Vestmannaeyjar. Og ég býst við því, að jafnvel þó að Vestmannaeyjar eignist svona tæki, þá muni reka að því, að landið þurfi að eignast dýpkunarskip, sem geti farið hafna á milli í þessum erindum.

Ég veit ekki, hvort það er áhættulaust að flytja þetta tæki, sem hugsað er að kaupa í Vestmannaeyjum, hafna á milli; einskonar skip trúi ég samt, að það sé, sem þau eru byggð á, eins og ég hefi vikið að í grg. fyrir þessari till.

Ef hv. þm. Borgf., sem ég veit, að vill alls ekki tefja fyrir þessu máli, heldur fast við þá till., að vísa málinu til sjútvn., þá vil ég ekki setja mig á móti því, en ég held ekki, að sú rannsókn, sem sjútvn. getur gert á þessu stigi málsins, verði mjög mikil.