14.11.1933
Efri deild: 9. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í C-deild Alþingistíðinda. (1202)

16. mál, takörkun eða bann á innflutningi á óþörfum varningi

Eiríkur Einarsson:

Áður en gengið er til atkv. um þetta mál, vildi ég gera grein fyrir afstöðu minni til þess. Ég fyrir mitt leyti lít svo á, að til þess að málið megi ganga áfram hér á Alþingi, þá verði að gera nokkrar takmarkanir frá hinu algerða afnámi heimildarlaganna frá 1920. Sú undantekning snýr að framleiðsluvörum Íslendinga sjálfra, og þá sérstaklega að framleiðsluvörum landbúnaðarins. Þá vernd, sem þær kunna að eiga í lögunum frá 1920, má ekki skerða, nema eitthvað annað komi í staðinn, er jafngildi henni að minnsta kosti. Ég vildi taka þetta fram hér til athugunar fyrir n. þá, sem málið fær til meðferðar, og jafnframt geta þess, að það eru fleiri þm. úr þeim flokki, sem ég tilheyri, sem líta þannig á þetta mál. Við teljum, að í hinum umræddu heimildarlögum felist nokkur vernd fyrir t. d. mjólkurframleiðslu okkar, svo sem smjör og ost, og ennfremur fyrir egg. Til þessara hluta teljum við, að taka beri fullt tillit, svo að sá höggvi ekki, sem hlífa skal.

Það eru ekki nægileg rök fyrir afnámi þessara laga, þó sagt sé, að við getum farið tollaleiðina til þess að vernda þessar framleiðsluvörur okkar, því að ef bráðabirgðalögin verða afnumin nú þegar, þá yrði þó nokkur bið þar til búið yrði að ganga frá lagasetningu um tolllagabreytingar vegna þessarar vöru. En ég tel, og legg áherzlu a, að enginn dagur megi líða svo, að ekki sé full varzla frá hendi löggjafarvaldsins í þessu efni.