07.11.1933
Neðri deild: 4. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í B-deild Alþingistíðinda. (123)

2. mál, kosningar til Alþingis

Eysteinn Jónsson:

Ég átti sæti í þeirri n., sem fjallaði um þetta mál, og sat þar fyrir hönd míns flokks. Ég ætla ekki að svo stöddu að tala um einstök atriði frv., en vildi þó fara nokkrum orðum um það og setningu kosningalaga almennt. Mér finnst það vera tvennt, sem einkum sé keppt að við setningu slíkra laga. Annarsvegar að skapa sem mest öryggi fyrir því, að réttur vilji kjósenda komi fram við kosningar, þannig, að ekki verði komið við neinskonar þvingun í þessum efnum, og yfirleitt ekki ranglæti beitt. Hinsvegar að útbúa kosningalög þannig, að sem auðveldast verði fyrir hvern og einn að neyta kosningarréttar síns. Nú er það svo, að með breyt. þeirri á stjskr., sem hiklaust má telja, að samþ. verði á þessu þingi, er æðimikið breytt aðstöðu manna til kosninga hér á landi. Hingað til hefir það verið svo, að aðstaðan hefir á vissan hátt verið talsvert misjöfn, þannig, að þeir, sem í strjálbýlum búa, hafa sent tiltölulega fleiri fulltrúa á þing en hinir. Með stjskrbreyt. dregur mikið saman með þessum mönnum. En þar sem breyt. gengur í þessa átt, verður að hafa sérstakar gætur á því, að sem bezt verði fullnægt 2. atriðinu, sem ég nefndi, nefnil. að aðstaðan til þess að notfæra sér kosningarréttinn verði sem bezt. Nú vil ég taka það fram, að ég leit svo á, að þótt um margt hafi verið góð samvinna í n., þá hafi þess þó ekki verið gætt sem skyldi, að gefa mönnum, sem í strjálbýlinu búa, aðstöðu til þess að notfæra sér þennan rétt. Ég kom fram með þá till. í n. að hafa kjördaga í sveitum tvo. Mun ég koma með þessa till. hér í þinginu, ef n. treystir sér ekki að taka hana upp. — Ég tel, að þessi tvö aðalatriði, er ég gat um, beri einkum að hafa í hyggju við afgreiðslu þessa frv. Ég mun athuga nákvæmlega allar till., sem fram koma í þá átt að veita mönnum sem bezta aðstöðu til að neyta kosningarréttar síns, og mun ég ljá þeim fylgi, ef þær skerða ekki öryggi við kosningar.

Um einstök atriði frv. verður sjálfsagt tækifæri til að ræða síðar.