24.11.1933
Neðri deild: 18. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í D-deild Alþingistíðinda. (1248)

30. mál, hafnargerði á Skagaströnd

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Þessi till. er flutt af hv. þm. A.-Húnv. og fjallar um, að á arinu 1934 verði látið koma til framkvæmda það ákvæði hafnarlaganna fyrir Skagaströnd, sem í l. er nefnt ákvæði um stundarsakir.

Sjútvn. telur nauðsynlegt, eins og segir í nál. á þskj. 100, að byrjað verði bráðlega á þessari hafnargerð. Til þess liggja margar ástæður, og þó enn fleiri nú á síðustu tímum heldur en áður, að þarna verði gerð höfn.

Þetta mál er búið að vera lengi á döfinni. Það var tekið til rannsóknar þegar á árinu 1921, og var þá gerð áætlun um verkið. Þá höfðu menn að vísu mest fyrir augum þá þörf, sem var á sæmilegri flutningahöfn að austanverðu við Húnaflóa, og hana vantar ennþá tilfinnanlega. Öll þau rök, sem lágu til þess 1921, að þing og stj. tóku þetta mál í sínar hendur, eru fyrir hendi nú, en síðan hafa bætzt við ný og mjög veigalítil rök, sem styðja að því, að ekki má fresta lengur að koma þessari hafnargerð í framkvæmd, a. m. k. að svo miklu leyti sem þáltill., sem hér um ræðir, fer fram á. — Á Skagaströnd mun búa eitthvað á annað hundrað manns, og eftir sögn þeirra, sem til þekkja, er landrými og landkostir þar svo góðir, að miklu fleira fólk gæti byggt staðinn, ef hafnarskilyrði væru bætt þar. Húnaflói er talinn vera með fiskisælustu flóum landsins, og sérstaklega hefir athygli manna dregizt mjög að honum síðan farið var að stunda síldveiðar.

Síðan þetta mál var flutt hér í d. hefir einn af merkustu fiskiskipstjórum þessa lands skrifað sérstaklega um þessa nauðsyn fyrir höfn á Skagaströnd, í eitt af dagbl. hér í Rvík. Rök hans í málinu eru mjög glögg og hníga í sömu átt og áður hefir fram talið verið. Hann talar að vísu ekki um flutningaþörfina, hún var þinginu áður kunn, en hann bendir skýrt og greinilega á, hve miklu hagstæðara það yrði fyrir fiskiveiðarnar, ef einmitt á Skagaströnd yrði byggð góð og örugg veiðihöfn. Ég geri ráð fyrir, að hv. þm. hafi kynnt sér rök þessa merka manns í málinu, og að öðru leyti hafi málið fengið hann undirbúning, að hér þurfi ekki fleiri orða við. Sjútvn. leggur öll með því, að málið nái fram að ganga. Form. hennar hefir að vísu skrifað undir nál. með fyrirvara, en ég býst við, að hann fylgi till. fyrir því án verulegs ágreinings.

Ég vil svo vona, að þetta mál verði samþ. hér í þessari hv. d., og í öðru lagi, að Alþ. og ríkisstj. sjái um, að þetta verði framkvæmt þegar á næsta ári.