05.12.1933
Efri deild: 26. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í D-deild Alþingistíðinda. (1257)

30. mál, hafnargerði á Skagaströnd

Björn Kristjánsson [óyfirl.]:

Ég efast ekki um, að hægt er að finna mörg rök fyrir því, að nauðsynlegt sé að gera hafnarvirki á Skagaströnd. Það er rétt, að þarna eru agaet skilyrði til fiskiveiða, sem ekki notast nema að litlu leyti meðan höfnina vantar, og eins hitt, að þetta er hættuleg siglingaleið og ekkert afdrep fyrir skip. Hinsvegar er þetta ekki eini staðurinn, sem svo er ástatt um. Það má segja hið sama um alla leiðina frá Eyjafirði til Seyðisfjarðar. Á allri þeirri leið er heldur engin höfn, þar sem skip gætu leitað afdreps í ofviðrum.

Eins og kunnugt er, hafa hrúgazt inn á þetta þing till. um heimildir handa stj. til fjárútláta, enda þótt þetta þing sé ekkert fjárlagaþing. Fjárhagur ríkisins er mjög bágborinn, og væri því ekki nema eðlilegt, að farið yrði varlega í að auka útgjöldin að mun. Með tilliti til þessa var líka felld í gær till. um heimild til að reka á ríkiskostnað bráðnauðsynlegt atvinnufyrirtæki. Mér sýnist líkt á komið með þessa till., sem hér liggur fyrir, og mun því greiða atkv. á móti henni. ekki af hví, að ég telji ekki þörf á að byrja á þessu mannvirki, heldur vegna þess allt of mörgum málum af þessu tægi hefir verið þröngvað upp á þingið.