05.12.1933
Efri deild: 26. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í D-deild Alþingistíðinda. (1259)
30. mál, hafnargerði á Skagaströnd
Jón Baldvinsson:
Af því að hv. frsm. vek að því, að nefnt hefði verið í umr. um síldarbræðslustöð á Norðurlandi að setja hana upp á Skagaströnd, þá er vert að athuga, hvort þetta mannvirki, sem áætlað er að kosti liðug 120 þús. kr., sé fært um að taka við síldarbraeðslunni. Ég álít, að svo sé ekki, og vil því vara menn við að samþ. till. með það fyrir augum. Til þess að taka við síldarbræðslustöð á Skagaströnd þarf miklu meiri viðbúnað bæði á landi og á höfninni heldur en hér er gert ráð fyrir. Það þarf m. a. góðar bryggjur, sem stór skip geta lagzt við, og það er ekkert viðlit, að hægt sé að byggja slíkar bryggjur í því hafnarkríli, sem þessi till. talar um. Út frá því sjónarmiði væri það í mesta máta misráðið að setja síldarbræðslustöðina á Skagaströnd, því að ef gert er ráð fyrir, að hún kosti 500 þús. kr., þá þyrfti að kosta annað eins eða meira hennar vegna í hafnargerð, ef hún yrði sett þar.
Hitt er annað mál, að þessi litla höfn á Skagaströnd verður gagnleg fyrir smærri útgerð og kannske fyrir smærri síldarsöltun. En fyrir síldarsöltun í stærri stíl býst ég við, að hún komi ekki til greina, því að þar, sem mikil síldarsöltun er, þarf helzt að vera bræslustöð, því að oftast er það svo, að ekki er öll síldin úr bátunum hæf til söltunar, og er þá nauðsynlegt að geta farið með úrkastið í bræðslu, ef ekki á að verða mikið tjón af. Ef menn samþ. till., þá vil ég játa samþ. hana með hreinni hugsun, að hér sé aðeins um bátahöfn að ræða, har sem ef til vill væri hægt að reka síldarsöltun í smærri stíl. Þegar ég greiði atkv. með till., þá geri ég það einmitt með þetta fyrir augum og læt mér alls ekki detta til hugar, að þarna sé staður fyrir stóra verksmiðju, með þeim hafnarvirkjum, sem hér eru fyrirhuguð.