05.12.1933
Efri deild: 26. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í D-deild Alþingistíðinda. (1260)
30. mál, hafnargerði á Skagaströnd
Frsm. (Magnús Jónsson):
Hv. 2. landsk. sagði, að þessi staður væri ekki fær um að taka við stórri síldarbræðslustöð, þó að byrjað yrði á þessu mannvirki. Ég býst við, að hv. þm. hafi misskilið mig, ef hann heldur, að ég vilji að svo komnu draga þangað síldarbræðslustöð. Það er hvorki ástæða mín né nefndarinnar fyrir því, að við mælum með till. Hv. þm. hefir víst ekki heyrt orð mín við umr. um síldarbræðslustöð á Norðurlandi, þegar ég helt því fram, að síldarbræðslustöðin ætti að vera á Siglufirði. Þessi höfn á Skagaströnd er aðeins fyrir báta, og hvorki fyrir togara eða síldveiðiskip. En þegar ég nefndi verksmiðjuna í sambandi við þessa hafnargerð, þá var mér síldauðgin á Húnaflóa í huga, og vildi ég með þessu benda á þá möguleika, sem þarna eru fyrir hendi. Ennfremur hefi ég nýlega seð skeyti að norðan, þar sem mælzt er eindregið til þess, að verksmiðjan verði sett á Skagaströnd. Ég vil samt ekki blanda verksmiðjumálinu inn í þetta, því að hér er aðeins um byrjun á hafnarvirki að ræða.
Um hitt er ég ekki sammála hv. þm., að ekki komi síldarsöltun þarna til greina nema í smærri stíl. Ég álit, að stærri síldarsöltun geti vel komið til greina, enda þótt engin verksmiðja sé á staðnum. Skipin geta hæglega farið til verksmiðjanna með þá síld, sem talin er of mikil til söltunar eða of gömul. Þannig var ráð áður á Siglufirði og víðar. Hinsvegar býst ég við, að fyrst í stað yrði rekin þarna síldarsöltun aðeins í smærri stíl. Ég vil einnig leggja áherzlu á það, að ef þessi till. verður samþ., þá er þar með því slegið föstu, að þetta sé aðeins byrjun að stærra hafnarmannvirki, sem ætlazt er til, að haldi afram. Og þá verður, áður langt líður, svo langt komið, að hægt verður að fara að tala um að setja þar upp bræðslu. En það er nauðsynlegt að fara að byrja á þessu sem fyrst, svo að hægt sé að fara að afla hafnarsjóði tekna með hafnargjöldum.
Mér sýnist rétt að samþ. till. Stj. ræður því, hvort hún leggur féð fram, ef mjög verður þröngt í búi, en æskilegt væri, að hægt yrði að byrja sem fyrst.