05.12.1933
Efri deild: 26. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 105 í D-deild Alþingistíðinda. (1261)

30. mál, hafnargerði á Skagaströnd

Einar Árnason [óyfirl.]:

Þessi till. fer fram á að heimila ríkisstj. að leggja fram 50 þús. kr. til byrjunar á hafnarmannvirki á Skagaströnd. Í raun og veru hefir stj. þessa heimild í lögum frá 1929, og getur notað hana hvenær sem henni sýnist og hún hefir efni á og tillag kemur á móti frá hafnarsjóði. Þess vegna virðist mér engin nauðsyn á að samþ. svona till. Hæstv. stj. hefir hvað eftir annað getið þess hér í d., að ríkissjóður hefði ekkert fé aflögu og að ekki yrði hægt að greiða auknar fjárveitingar nema fjárframlag kæmi í ríkissjóð á móti. Þess vegna sé ég ekki, að nokkurt gagn sé að þessari till. Ég vil líka taka svo mikið tillit til hæstv. stj., að ég get ekki greitt þessari till. atkv. mitt.

Önnur hlið málsins snýr að hafnarsjóði Skagastrandar. Ég veit ekki til, að hann hafi haft nokkrar tekjur, og nú á hann að snara út 75 þús. kr. til þess að leggja fram á móti framlagi ríkissjóðs. Þetta verður ekki hægt með öðru móti en því, að fá lán með ábyrgð ríkisins. Þá væri stofnað til 75 þús. kr. skuldar, og þegar búið væri að leggja fram þessar 125 þús. kr., þá sé ég ekki, hvernig hafnarsjóður fær þær tekjur, sem þarf til þess að standa straum af útgjöldum vegna skuldarinnar. Mér finnst hv. flm. hafi ekki athugað, hvort þeir væru ekki með þessu að leiða hlutaðeigendur inn í skuldaflækju, sem yrði fátæku sveitahéraði of þungur baggi. Og ef fjármálagætni er heima fyrir í héraðinu, þá verður ekki ráðizt í að taka 75 þús. kr. lán á þessum tímum. Þetta gerir till. líka tilgangslausa.

Ég vildi með þessum orðum aðeins skýra afstöðu mína gagnvart þessu máli, að ég tel, að till. geti engum orðið að gagni. Ef hún geri nokkuð, þá geri hún í hæsta lagi ógagn.