05.12.1933
Efri deild: 26. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í D-deild Alþingistíðinda. (1266)
30. mál, hafnargerði á Skagaströnd
Einar Árnason [óyfirl.]:
Ég talaði nokkur orð áðan, til að skýra ástæður mínar fyrir því, að ég er mótfallinn þessari till. Nú hafa þrír hv. þdm. haldið ræður til að mótmæla því, er ég sagði. Þeir hafa talað um, að þarna væru góð fiskimið og að sjálfsagt væri því að gera þarna höfn. Í stuttu máli sagt, þá hafa þeir talað eins og ég væri algerlega mótfallinn því, að þarna væri nokkuð gert. En þetta er hreinasti misskilningur. Ég var ekki á nokkurn hátt að mæla gegn því, að þarna yrði byggð höfn. En ég álít bara, og móti því hefir enginn getað mælt, að stj. og viðkomandi hérað hefðu fulla heimild til að byrja þarna á framkvæmdum, hvenær sem þessir aðilar sjá sér fært að ráðast í þær fjárhagsins vegna eða annara aðstæðna. Það, sem í þessari till. stendur, er ekkert annað en endurtekning á því, sem nú stendur í 1., og skapar því engan nýjan rétt eða ný skilyrði til framkvæmda. Þetta vita allir, og ég veit ekki annað en að stj. hafi fyrir nokkrum árum boðizt til að leggja fram sinn hluta, en þá hafi framkvæmdirnar strandað á hreppsbúum sjálfum, því þarf ekki að efast um, að stj. standi við þetta, þegar þeir eru tilbúnir. Þegar byggð voru hafnarmannvirkin í Borgarnesi. Var gerður samningur milli stj. og héraðsbúa, og þurfti engrar þáltill. með.
Það er misskilningur, að ég sé að leggjast á móti málinu. Ég hefi aðeins verið að sýna fram á, að þessi þáltill. er hégóminn einber. Ég sé enga ástæðu til þess, að þingið sé að gera nokkra samþykkt í þessu máli aftur. Síðan þingið samþ. fjárveitinguna eru liðin mörg ár, og verkið væri nú komið í framkvæmd, ef ekki hefði staðið á héraðsbúum sjálfum. Það er að vísu ágætt, ef þeir treysta sér nú til að hefjast handa, en þessi till. hjálpar ekkert til þess. — Um fiskimiðin þarna nyrðra ætla ég ekki að deila, því að þau koma ekki þessu máli við.