24.11.1933
Neðri deild: 18. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í D-deild Alþingistíðinda. (1273)

43. mál, brimbrjóturinn í Bolungarvík

Frsm. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:

Fjvn. hefir haft þetta mál til athugunar og er sammála um, að brimbrjóturinn eins og hann er nú sé í talsvert mikilli hættu, og hún er einnig sammála um, að hér sé um svo mikil verðmæti að ræða, að ekki komi til mála að láta þau verða að engu fyrir það, að ekki sé til heimild fyrir stj. til þess að veita fé til endurbóta á honum. Atvinna allra þorpsbúa í Bolungavík er bundin við hað, að þetta mannvirki bili ekki, því að ef brimbrjóturinn brotnar, þá eru bátavarir og bátalendingin ónýtt um leið. Að þessu athuguðu leggur n. til, að till. verði samþ., en gengur jafnframt út frá því, að ríkisstj. láti athuga áður en byrjað er á verkinu, hvort þetta teljist fullnægjandi til þess, að mannvirkið skemmist ekki.