02.12.1933
Efri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í D-deild Alþingistíðinda. (1290)

63. mál, áveitur

Flm. (Eiríkur Einarsson):

Ég vil aðeins geta þess út af ræðu hv. 4. landsk., að þó till. hafi ekki verið vísað til n., þá hefir landbn. samt haft hana til athugunar, og finnst mér það koma nokkuð í sama stað niður eins og þó till. hefði verið formlega vísað til n., enda vona ég, að landbn. geri grein fyrir skoðun sinni á till. og að þá komi í ljós, að ekki þyki þörf að vísa henni til n. frekar en orðið er.