02.12.1933
Efri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í D-deild Alþingistíðinda. (1294)
63. mál, áveitur
Flm. (Eiríkur Einarsson):
Hv. 6. landsk. lýsti yfir því, að hann myndi greiða atkv. með till. minni. Þó gat hann um nokkra annmarka á henni, einkum að því, er kemur til orðalagsins. Talaði hann um frekjulegt orðalag. Ef svo er, þykir mér það leitt, en ég hefi ekki viljandi orðað till. frekjulega. Geri ég helzt ráð fyrir því, eftir orðum hv. þm., að hann hafi hneykslazt á þeim orðum till., þar sem talað er um, að stj. undirbúi lagasetningu til að samræma stofnkostnaðargreiðslur þeirra, er að áveitunum búa, svo að þeir, sem hlutfallslega hafa orðið harðast úti, nái jafnrétti við hina, er hafa fengið sanngjarnasta skipun þeirra mála sinna. Gætir hér misskilnings hjá hv. 6. landsk. Með till. er einungis óskað undirbúnings af hálfu ríkisstj. um þessi mál. Tekið til athugunar, hvort misfellurnar verði ekki færðar til samrýmingar. Hver er frekjan í þeirri málaleitun og að hverju leyti er Alþingi búið að binda sig, þótt það samþ., að slík athugun fari fram? Hið frekjulega í till. minni hlýtur að byggjast á annari málvenju hjá hv. 6. landsk. en ég þekki, og hugði ég þó, að við ættum sama móðurmál.
Hv. 6. landsk. sagði um það, er Flóaveitunni var gefinn eftir mestur stofnkostnaðurinn, að það hafi verið líknarverk á nauðstöddum atvinnuvegi. Þetta er fallega mælt, og þarna nálgaðist hv. þm. réttan skilning, þótt bæta hefði mátt við, að líknarverkið hafi verið nauðsyn landbúnaðarins. En ég vil bara spyrja: Ef það hefir þótt rétt af Alþingi að gera þetta í fyrra, því er þá ekki sama máli að gegna nú um Skeiðaáveituna? Annars er óþarfi að vera að ræða þetta atriði frekar, því hér er aðeins verið að leita hófanna hjá stj., hvort ekki muni fært að undirbúa slíka lagfæringu. Hún á að hafa þarna öll ráðin í samræmi við bendingar Alþ. Það er því, held ég, ekki verið að hleypa neinum háska af stokkunum með till. Annars á ég erfitt með að skilja þá hóflausu varasemi, sem fram kom í ræðum hv. 4. og hv. 6. landsk. Hv. 6. landsk. get ég reyndar skilið. Þar helzt tortryggni og yfirlitsleysi um mál þau, sem um er að ræða, í hendur, en hv. 4. landsk. skil ég verr. Hans hugsjónir eru oft vaxnar upp úr varaseminni, en þarna er hún svo yfirgnæfandi, að ekkert spor má stiga an þess að n. hafi áður tekið það til nákvæmrar athugunar og jafnvel stjórn Búnaðarfélagsins. Hv. form. landbn. er búinn að lýsa yfir því, að n. hafi litið yfir till. að svo miklu leyti, sem nauðsynlegt þótti. Hjá hv. 4. landsk. kom það fram, að þó að búnaðarmálastjóri hefði lýst sig hlynntan till., þá væri samt ástæða til að leita til Búnaðarfélagsstj. sjálfrar. Ég held, að rétt sé að leita þangað, þegar ríkisstj. fer að taka það til athugunar, hvort leggja beri út í þessa lagasetningu eða ekki. En fyrr er ekki þörf á því. Hér er aðeins um það að ræða, hvort Alþingi telji rétt, er það athugar málið í skyndi, að fela ríkisstj. að taka það til frekari meðferðar og semja einhverja löggjöf um það, sem áótavant kann að vera. Hver sá hv. dm., sem lítur svo á, að hér sé einhverju ábótavant, hann greiðir atkv. með því að fela stj. þetta. En ef einhverjir hv. dm. vilja koma till. fyrir kattarnef, þá er sjálfsagt fyrir þá að reyna að koma málinu í n. Hygg ég, að nú farinn að styttast sá tími, sem þingið á setu, og hefir það svo sem komið fyrir, að till. dagaði uppi, ef n. fengu þær svo seint til meðferðar. Óska ég því, af tilgreindum og framkomnum ástæðum, að hv. dm. annaðhvort samþ. till. eða felli, en mælist til, að henni verði ekki vísað í n.