02.11.1933
Sameinað þing: 1. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í B-deild Alþingistíðinda. (13)

Rannsókn kjörbréfa

Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:

Það er eitt atriði, sem ég vildi minnast á og ekki hefir komið fram í ræðum þeirra, sem talað hafa. Við verðum að gæta þess, að þau lög, sem gilda um kosningu utan kjörstaða, eru sett af sérstökum ástæðum. Fram til 1928 gilda önnur lög í þessu efni, og það dylst engum, er athugar, hvernig þau lög voru framkvæmd, að það var ekki að nauðsynjalausu, að þeim var breytt. Á þinginu 1928 var það engin tilviljun, að lögunum var breytt og að inn í þau voru sett ákvæði, sem kæmu í veg fyrir það, að þær misfellur, sem áður höfðu orðið á framkvæmd þeirra, endurtækju sig. Í lögunum frá 1928 segir, að kosið skuli í „einrúmi og aðstoðarlaust“. Hér er því um bersýnilegt brot á lögunum að ræða, og lögin eru einnig brotin að því er snertir vitundarvottana, en það er einmitt tekið fram í lögunum, að þeir skuli hafðir.

Það liggur í augum uppi, að öryggi kjósenda er miklu minna, ef kosið er utan kjörstaða. Þegar kosið er á kjörstað, eru umboðsmenn allra frambjóðenda við hendina, og getur því kjósandinn ávallt fengið aðstoð hjá umboðsmanni síns flokks, en um slíkt er ekki að ræða við kosningar utan kjörstaða, og það er ekki einungis, að kosið sé hjá sýslumönnum, heldur einnig bæði hjá hreppstjórum og skipstjórum. Þess vegna þarf að gæta þess að hafa enga opna smugu til þess að hægt sé að misnota lögin.

Þeir, sem vilja taka kosninguna gilda nú þegar, segja, að atkvæðismismunurinn sé svo mikill, að engar líkur séu til, að þetta hefði getað haft áhrif á úrslit kosningarinnar. Atkvæðamunurinn er ekki nema 22 atkv., og þar af eru 6 atkv., sem tvímælalaust ætti ekki að taka gild, þá er munurinn kominn niður í 16 atkv.

Hv. „fyrrverandi“ þm. Hafnf. gat þess, að sú breyt., sem varð á hjá bæjarfógetanum um að veita aðstoð, hafi verið tilkynnt á báðum kosningaskrifstofunum jafnt. En þó að þetta sé rétt, þá er ekki loku skotið fyrir, að það hafi einhver áhrif haft á þá menn, sem annars hefðu kosið og ekki hafa notað rétt sinn. Það væri verkefni fyrir kjörbréfanefndina að athuga, hvort málið væri þannig vaxið.

Eitt atriði er líka rétt að benda á, og það er það, að auk þessa, sem áður hefir verið getið, eru misfellur á embættisrekstri bæjarfógetans í Hafnarfirði sem kjörstjóra við þessar utankjörstaðarkosningar, og vil ég drepa lítillega á þá hlið málsins. Í fyrsta lagi neitar bæjarfógetinn um aðstoð við kosningar, en sér sig sían um hönd, af því að hann fær vitneskju um, að einhver kjörstjóri hér í Rvík hafi það öðruvísi, og tekur þá reglu að aðstoða við kosningar. Í öðru lagi bera fylgibréf þessara 6 kjörseðla það alls ekki með sér, að það hafi verið aðstoðað við kosninguna, eftir því sem þau eru útfyllt. Og hvernig hægt er að segja, að kosið hafi verið „aðstoðarlaust og í einrúmi“, þegar aðstoðað er við kosninguna, get ég alls ekki skilið.

Það eru og fleiri misfellur á þessu frá hendi kjörstjórans í Hafnarfirði. Það eru ekki færri en 9 atkvæðaseðlar, sem eru dæmdir ógildir af þeirri ástæðu, að sumstaðar hefir gleymzt að setja nafn bæjarfógetans undir fylgibréfið, og stundum gleymzt að setja nafn kjósandans, en það er bæjarfógetinn, sem á að sjá um, að þetta sé gert. Þarna eru 9 atkv., sem enginn veit, hvernig hafa fallið. Ef þau hefðu öll fallið á Kjartan Ólafsson, þá færi munurinn ekki að verða svo mikill. Svo hefir bæjarfógetinn algerlega vanrækt að hafa vitundarvottana við, eins og fyrirskipað er í lögunum. Það þykir sjálfsagt að hafa vitundarvotta við allar réttargerðir, og þess ætti ekki síður að vera þörf undir svona kringumstæðum.

Þá er eitt atriði ennþá, og það er það, að brotin er sú leynd, sem á að vera yfir svona kosningum. í stað þess að úrskurða um gildi þessara 6 atkv., sem aðstoð var veitt við, eftir fylgibréfunum, og láta þau svo, sem gild voru tekin, í atkvæðakassann með öðrum atkvæðum, hefir yfirkjörstjórnin tekið þessi atkv. frá og opnað þau sérstaklega. Sendir síðan til Alþingis þessi 6 fylgibréf og segir, að þessir 6 atkvæðaseðlar séu frá þeim. Með þessu er rofin sú leynd, sem kjósendum á að vera tryggð eftir lögunum.

Ef hv. þm. finnst ekki ástæða til að láta athuga þetta mál í nefnd, þá verð ég að segja, að þeir séu ekki mjög kröfuharðir. En ég játa, ef rétt er hermt hjá hv. 3. þm. Reykv., að tekin hafi verið gild kosning, þó að fjöldi manna kysi, sem ekki var á kjörskrá, að þingið hafi synt mjög mikið frjálslyndi í þessum efnum.

Fundi frestað til kl. 1 miðdegis næsta dag.

Föstudaginn 3. nóv., kl. 1 miðdegis, var umr. fram haldið.