20.11.1933
Neðri deild: 14. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í B-deild Alþingistíðinda. (130)
2. mál, kosningar til Alþingis
Frsm. (Eysteinn Jónsson):
Meiri hl. stjskrn., 3 framsóknarmenn og alþýðuflokksmaðurinn í n., á hér nokkrar brtt. Þær fjalla í raun og veru um tvö atriði í frv. Annað er um skipun kjörstjórna og hitt um kjörseðilinn. Ég get þessa strax, svo að hv. þm. geti áttað sig á, að brtt. skiptast í tvo flokka. Meiri hl. leggur til, að í stað þess, að gert er ráð fyrir í frv., að sýslumenn og hreppstjórar séu sjálfkjörnir í kjörstjórnir, skuli allir kosnir í kjörstjórnir. Það, sem vakir fyrir meiri hl., er, að tryggt sé, að flokkarnir fái fulltrúa í kjörstjórnir. Einkum á þetta við um undirkjörstjórnir, vegna þess að þær þurfa oft að aðstoða við kosninguna á kjörfundi. Minni hl. hélt því fram, að hreppstjórar og sýslumenn ættu að sjálfsögðu að vera sjálfkjörnir í kjörstjórnir, þar sem það væru hæfustu og vönustu mennirnir. Meiri hl. leit svo á, að þetta væri ósanngjarnt, þar sem sá flokkur, sem telur sér hreppstjóra eða sýslumann, þarf ekki að eyða sínu atkvæði á hann. og fær þannig óeðlilega afstöðu innan kjörstjórna. En þó svo væri að sýslumenn væru öðrum fremri í þessu efni, þá er því til að svara, að sýslumenn geta ekki alstaðar verið formenn kjörstjórnar hvort sem er. Reynslan hefir sýnt, að kjörstjórnir hafa alls ekki verið lakari í þeim stöðum. Ef sá flokkur, sem telur sér sýslumann, teldi hann hæfastan manna til þess að eiga sæti í kjörstjórn, þá getur hann sett sín atkvæði á sýslumann og komið honum þannig inn í kjörstjórn. Ég geri líka ráð fyrir því, að svo myndi fara, að sýslumenn og hreppstjórar kæmust alstaðar inn í kjörstjórnir, en með þessu móti yrði ekki raskað jafnvæginu á milli flokkanna. Er þetta því á allan hátt „demókratiskara“.
Þá kemur að hinu atriðinu, sem brtt. fjalla um, og það eru kjörseðlarnir. Það hefir verið útbýtt hér í d. uppkasti að kjörseðli, sem er eftir fyrirmælum frv. og brtt., sem minni hl. stjskrn. ber fram. Það, sem meiri hl. stjskrn. hefir út á kjörseðilinn að setja, er það, hvernig neðri hluti hans er útbúinn. Það er enginn ágreiningur um efri hluta seðilsins, en aðeins um landskjörshluta hans.
Meiri hl. stjskrn., eins og raunar líka minni hl. hennar segist óska, vill leggja áherzlu á, að sem einfaldast sé fyrir kjósendur að kjósa, og að þannig sé frá seðlinum gengið, að kjósandi freistist ekki til þess að rjála við hann að óþörfu og eyðileggi atkv. sitt með því.
Það er skoðun meiri hl. stjskrn., að með því að prenta á seðilinn nöfn landslista, þá sé miklu meiri hætta á þessu, og stingur hann því upp á því, að í staðinn fyrir að prenta nöfn landslista á seðilinn, þá sé neðri hluti hans auður. Ef menn þá vilja kjósa landslista, eiga þeir að rita bókstaf þess lista, sem þeir vilja kjósa, á seðilinn. Með þessu virðist meiri hl. stjskrn. það tryggt, að aðrir eigi ekki við landskjörshluta seðilsins en þeir, sem hafa hugsað sér að ganga framhjá frambjóðanda í sínu kjördæmi og kjósa landslista, og viti þá, hvernig þeir eiga að fara að því.
Nú er það svo í frv., að gengið er út frá því, að landslisti sé aðeins kosinn, ef kjósandi er óánægður með frambjóðanda í kjördæmi sínu, en frambjóðanda í kjördæmi reiknast þó þau atkv., sem listinn fær. Frágangur landskjörshluta seðilsins hefir því mesta þýðingu, þar sem enginn frambjóðandi er fyrir flokkinn í kjördæmi. Meiri hl. stjskrn. finnst því, að það muni vera ákaflega auðvelt að koma mönnum í skilning um það, að aðeins þurfi að skrifa listabókstafinn á seðilinn.
Eins og menn sjá er gert ráð fyrir í frv., að menn geti gert breyt. á landslistakjörseðlinum, og að kjósendur þeirra flokka, sem engan landslista hafa í kjöri, geti látið í ljós vilja sinn um, hverjir hljóta skuli uppbótarsætin, með því að rita nöfn eins eða fleiri frambjóðenda flokksins á landskjörshluta seðilsins. Það má því gera ráð fyrir, að kjósandi þurfi á nokkru rúmi að halda, til þess að láta í ljós fullan vilja sinn í þessu efni, og það virðist meiri hl. stjskrn. ekki hægt, nema því aðeins, að seðillinn sé auður, eins og brtt. okkar gera ráð fyrir.
Ég hefi nú gert grein fyrir því, hvers vegna meiri hl. stjskrn. hefir komið með þessar brtt. Honum virðist, að ef þær nái fram að ganga, þá sé betur gætt öryggis við kosningar og minni hætta á, að menn ónýti atkvæði sín.
Þá vil ég fara nokkrum orðum um brtt. á þskj. 76. Hún er flutt af mér, hv. þm. Barð. og hv. 1. þm. Eyf. Ég gat þess við 1. umr. þessa máls hér í þessari hv. d., að við hefðum í hyggju að koma fram með brtt. um, að hafðir skyldu tveir kjördagar til þess að kjósendum sé gefin betri aðstaða til að nota kosningarrétt sinn. Milli mín og flokksbræðra minna hefir orðið samkomulag um að flytja brtt. um, að aukakjörfund sé skylt að hafa daginn fyrir almennan kjördag, ef um það kemur ákveðin ósk frá þriðjungi kjósenda í viðkomandi kjördeild. Þessar brtt. allar sex eru um sama atriði, og verður því annaðhvort að samþ. þær allar eða fella þær allar.
Ég skal geta þess til skýringar við 1. brtt., sem er um það, hvenær kjörskrá skuli ganga í gildi, að ætlazt er til, að hún sé gengin í gildi fyrir aukakjörfund.
Með kosningalagafrv. eins og það nú liggur fyrir er nú að vísu stefnt að því, að þeim mönnum sé gert sem auðveldast að kjósa, sem sökum ýmissa aðstæðna hafa erfiða aðstöðu til að nota kosningarrétt sinn; t. d. er það gert með því að hafa kjördeildir fleiri en áður. Í ýmsum héruðum er erfitt að koma við hentugri kjördeildaskipun, og væri því mjög heppilegt fyrir kjósendur, að til væri í l. heimild til þess að hafa kjördagana tvo. Ég geri ekki ráð fyrir því, að þessi heimild verði notuð annarsstaðar en þar, sem full þörf er fyrir hendi, og ég get ekki séð neitt, sem mælir á móti því, að þessi leið sé farin þar, sem erfið er kjörsókn.
Það má nefna ýms dæmi þessu máli til stuðnings, eins og t. d. þar, sem fámennt er á heimilum og hjónin verða að skiptast á að fara á kjörfund, til þess að skilja ekki heimilið og börnin eftir í óreiðu. Þá væri vissulega miklu heppilegra að hafa kjördagana tvo, svo að þau gætu farið sinn daginn hvort. Eins er það með eldra fólk og lasburða, sem erfitt á með að sækja kjörfund, ef nokkuð er að veðri. Það gæti verið mjög hentugt fyrir það að mega fara á kjörstað og neyta atkvæðisréttar síns á laugardaginn fyrir aðalkjördaginn, ef veður væri þá gott.
Ég vænti þess, að hv. d. sýni skilning sinn á þessu máli, og að hún loki ekki þeim möguleika til hagkvæmara fyrirkomulags í þessu efni, sem opnast, ef sú nýja leið er farin, sem þessar till. gera ráð fyrir.