06.12.1933
Efri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í D-deild Alþingistíðinda. (1304)
63. mál, áveitur
Eiríkur Einarsson:
Ég þakka hv. landbn. fyrir afgreiðslu hennar á þessu máli mínu. Hún hefir nú skjalfest það álit sitt, sem hún var raunar áður búin að láta í ljós. Eins og vænta mátti, er það í samræmi hvað við annað. Vona ég, að hv. d. sjái sér nú fært að samþ. tillöguna.