02.12.1933
Efri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í D-deild Alþingistíðinda. (1306)

63. mál, áveitur

Forseti (EÁrna):

Ég get ekki tekið þessar ástæður hv. þm. til greina, vegna þess, að það getur haft áhrif á, hvort málið verði afgr. nú frá þinginu, hvernig hann greiðir atkv. í málinu. Og þar sem það kemur ekki í bága við það, sem hv. þm. vill, að Alþ. afgr. málið, þá get ég ekki tekið þessar ástæður til greina.