06.12.1933
Efri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í D-deild Alþingistíðinda. (1318)
91. mál, fóðurskortur í illu árferði
Flm. (Eiríkur Einarsson):
Óþurrkarnir hér sunnanlands síðastl. sumar hafa fært mönnum heim sanninn um, hversu nauðsynlegt það sé að birgja sig upp með fóðurbæti, þegar misbrestur verður á heyafla baendanna. Það kom í ljós eftir þetta óþurrkasumar, þegar menn könnuðu heyjaforða sinn, að hann var hvergi nærri fullnægjandi. Heyin reyndust hvergi nærri eins trygg og vera ætti. Var þá af mörgum byggt á því, að til væri í landinu íslenzkt fóðurmjöl, sem tryggt gæti menn gegn vandræðum. En þegar til þess kom í haust, að kaupa skyldi fóðurbætinn, kom það í ljós, að um enga heildarskipun var að ræða í þessu efni.
Reyndist það svo, að innlendur fóðurbætir var lítt fáanlegur. Var það hrein tilviljun, ef þessi eða hinn bóndi, sem til verzlana leitaði um síldarmjöl, gat fengið það. Mörgum varð það með öllu ófáanlegt. Var þá ekki annað fyrir en að nota útlenda mjölvöru til fóðurbætis. Þetta var svo almennt fyrirbrigði, að full nauðsyn er að hreyfa þessu máli á Alþingi, ef það gæti orðið til þess, að betur væri verið á verði næst, er slíkt kynni að koma fyrir. Í 1. nr. 42 frá 1929 eru að vísu ákvæði, sem gera ráð fyrir þessum möguleika og hafa þann tilgang að varðveita sveitarfélög gegn slíkum búsifjum sem þessum. Þar eru síldarbræðslur skyldaðar til að gefa sveitarfelögum kost á síldarmjöli við kostnaðarverði, ef hlutaðeigendur afhendi pantanir sínar fyrir 1. ágúst. En þessi frestur þótti þó of stuttur, og kom því til mála á þingi 1931 að lengja frestinn til 1. sept., án þess að málið yrði ýtrætt. Samkv. samkomulagi milli hinna innlendu kaupenda og verksmiðjanna hefir þessi frestur þó í rauninni verið miðaður við 1. sept. síðan. En þetta er þó allt í molum og ekkert fyrirkomulag til, sem geri það mögulegt að fá vitneskju um, hve mikil er þörfin á innlendum fóðurbæti að haustinu, þegar fóðurbirgðir eiga að ákveðast.
Ég held nú, að ráða megi bót á þessu á einfaldan hátt. Þegar kemur fram um höfuðdag og sest, hvað verða vill um heyöflun bænda, er hægt fyrir Búnaðarfélgsstj. í Rvík að síma til búnaðarsambanda úti um land og afla sér vitneskju um þetta atriði. Held ég, að auðvelt væri að afla slíkrar fræðslu á 4–6 dögum, alstaðar af Íslandi, er slíkt væri orðið að reglu. Ef þessu væri þann veg fyrir komið, að verksmiðjur gætu átt kost á því um höfuðdag að fá vitneskju um þessa hluti, ætti það síður að geta komið fyrir, að fóðurbætir reyndist ekki til, þegar hans er þörf; birgðirnar fluttar úr landi, er til skal taka heima fyrir, svo sem nú á sér stað.
Till. mín skýrir sig sjálf, og þarf ég ekki mörgum orðum um hana að fara. Búnaðarfél. safnar gögnum hjá búnaðarsamböndunum og kemur þeim í tæka tíð til verksmiðjanna. Slíkt árferði, sem í sumar var á suðvesturhjaranum, getur komið hér á hverju sumri. Er það því sízt ótímabært að slá nú varnaglann við því, að stórtjón geti hlotizt af vanrækslu, sem enn á sér stað í þessum efnum. En ef handaskolin í þessum málum eru svo mikil, að bændur eigi ekki kost á að afla sér innlends eða neins fóðurbætis, þá er ekkert annað fyrir dyrum en að þeir verði að farga búpeningi sínum umfram það, sem bústofninn þolir, að á hann sé gengið, eða þá að setja hann á guð og gaddinn. Er því augljóst, að betur verður um hnútana að búa.
Þá vil ég aðeins minnast á tvö atriði enn. Það fyrra er nauðsynin á því, að varan sé góð, sem bændum verður úthlutað, og verðlagið sanngjarnt. Hefi ég orðið var við, að síldarmjöl það, sem hér hefir verið notað hin síðari ár, hefir verið misgóð vara, enda þótt segja megi, að það hafi yfirleitt reynzt sæmilega. Síldarbræðslurnar munu freistast til að senda heldur til útlanda þá vöru, sem bezt er, en reyna heldur að svæla í landann því, sem lakara er. Hefir hér stundum verið seld þrá og of sölt síld með svo sem helming fóðurgildis á við fullgilda vöru, og seld fullu verði. Væri það ekki orð í ótíma talað, að Búnaðarfélagsstj. væri hvött til þess, um leið og hún tæki þetta mál til meðferðar, að sjá svo um, að menn þyrftu ekki að kaupa köttinn í sekknum, en borguðu vöruna í samræmi við gæði hennar.
Hitt atriðið er það, að ef þessar pantanir verða samfelldar og formlegar, þá kemur til greina verðlagið með tilliti til flutningsins. Þar sem nú ríkið ræður miklu um alla flutninga með ströndum fram, væri því innanhandar, þegar illa lætur í ari, að gefa bændum kost á ódýrum flutningi með skipum þeim, sem landið á hvort sem er yfir að ráða.
Af hugulsemi við hv. d. læt ég hér máli mínu lokið, í von um það, að hún sjái sér fært að samþ. till. mína.