06.12.1933
Efri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 137 í D-deild Alþingistíðinda. (1321)
91. mál, fóðurskortur í illu árferði
Magnús Jónsson:
Mér var kunnugt um þetta ákvæði, en ég sé ekki, að það sé í samræmi við till. Í l. segir, að verksmiðjunni sé skylt að láta af hendi það síldarmjöl, sem pantað hafi verið fyrir 1. ágúst, en í till. er ekki um það að ræða að fullnægja pöntunum, heldur er þar sagt, að þegar svo ber undir, skuli stj. sjá um, að ekki verði selt út úr landinu of mikið af þessari vöru. Í l. er átt við eðlilega og stöðuga þörf, sem er á fóðurbæti, en í till. er um að ræða sérstakar ráðstafanir, sem menn hafa hugboð um, að gera þurfi. Verður þess þá minni kostur að tryggja það, að verksmiðjurnar hljóti ekki skaða af. Má vera, að hægt sé að framkvæma þetta, en mér finnst það allt of undirbúningslaust, og vil ég, að málið sé betur athugað, áður en lengra sé farið.