06.12.1933
Efri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 137 í D-deild Alþingistíðinda. (1322)
91. mál, fóðurskortur í illu árferði
Flm.:
(Eiríkur Einarsson): Ég held, að þegar tekin eru saman lagaákvæði þau, sem vitnað hefir verið til, og orðalag till., þá sé ekki vandi að fela Búnaðarfélagsstj. Þetta. Það er lögfest, að svona pantanir eigi sér stað, og í till. segir, að í árferði, þegar óhjákvæmilegt sé að tryggja bústofninn, skuli í tæka tíð gera ráðstafanir, sem tryggi, að bætt verði úr þeirri þörf, sem þá kann að verða á fóðurbæti. Það, sem vakti fyrir mér, var það, að þegar þörfin er brýnust, þá nái það engri átt að láta hjá líða að tryggja þetta. Ef ganga þarf nærri einhverjum síldarverksmiðjum með þessum ráðstöfunum, þá er stj. skyld að setja bráðabirgðalög til þess að bæta þeim upp þann óhagnað, sem þær kunna að verða fyrir.
Verksmiðjurnar hafa stundum selt bændum síldarmjöl fyrir sama verð og það er selt til útlanda, enda þótt það hafi oft verið lakari vara. Hér er talað um, að þær skuli selja fóðurbætinn við kostnaðarverði, og þau hin sömu eru fyrmæli laganna. Hér er ekki verið að ganga á rétt verksmiðjanna, og þær munu ekki fara halloka í þessum viðskiptum. Hér er aðeins verið að tryggja rétt bænda. Er það og skylda stj. að gera allt, sem í hennar valdi stendur, til þessa. Til þess var ákveðið sett í lögin frá 1929, og því til áréttingar er þessi till. flutt.