04.12.1933
Neðri deild: 25. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í D-deild Alþingistíðinda. (1336)
77. mál, dýrtíðaruppbót
Finnur Jónsson:
Þessi þáltill. er sama efnis og frv., sem við Alþýðuflokksmenn fluttum í byrjun þessa þings, en mun vera tekið aftur vegna þessarar till. Við Alþfl.menn munum þess vegna greiða till. atkv. og vonum, að hún nái samþykki Alþingis. Hv. þm. A.-Húnv. hefir lagt fast á móti þessari till. og hefir mótmælt henni sem fulltrúi hinna vinnandi stétta í landinu. Ég veit ekki, fyrir hve mikinn hluta af vinnandi stéttum landsins hann er fulltrúi, en trúað gæti ég, að sá hluti væri ekki stór. Ég mæli með þessari till. Við fulltrúar verkamanna og verkamenn viljum ekki, að ríkissjóður svelti sína starfsmenn svo, að hv. Alþingi þurfi að útbúa handa þeim sérstaka kreppuhjálp. Hæstv. forsrh. talaði um það, að tryggasta ráðið til þess að útvega innlendan markað fyrir landbúnaðarvörur væri að launa sæmilega starfsmenn ríkisins, en þetta á líka við um verkamenn. Því betra kaup sem þeir hafa, því meira kaupa þeir áreiðanlega af bændum af nauðsynjavörum. Þetta er sameiginlegt hagsmunamál verkamanna og bænda, þeirra stétta, sem ýmsir flokkar hafa gert sér að leik að reyna að etja saman sem óvinum.
Það er vitanlegt, að ýmsir starfsmenn ríkissjóðsins hafa að viðbættri dýrtíðaruppbót ekki nema tæpar 200 kr. á mánuði, og það vita allir, að það er ekki lífvænlegt svo að segja í nokkrum kaupstað á landinu fyrir fjölskyldumann með þessar tekjur. Það gerir ekki betur en það hrökkvi einhleypum manni til að lifa af, og ýmsum af þessum mönnum er trúað fyrir miklum peningum, eins og t. d. póstmönnum. Það er vitanlega ekkert vit í því að hafa laun þessara manna svo lag, að þeir ekki geti dregið fram lífið. Getur ríkissjóður verið þekktur fyrir það? Nei. Mér skilst hv. þm. A.-Húnv. ekkert tillit vilja taka til þess, hvað fólkið þarf að hafa til að geta lifað. Hann segir, að það sé rekstrarhalli á framleiðslunni, og þess vegna verður að heimta, að starfsmenn ríkisins lifi á loftinu. Það er svo dýrt að lifa í kaupstöðum landsins, að sá fjölskyldumaður, sem hefir innan við 200 kr. á mánuði, hefir engan tekjuafgang af starfi sínu; hann hefir ekki einu sinni nóg fyrir sæmilegu framfæri sínu og sinna. Og þá vil ég spyrja hv. þm. A.-Húnv., ef till. verður felld, — hvað á að gera við þá menn, sem hafa svo lítil laun, að þeir geta ekki lifað af þeim? að senda þá á sveit sína, eða hvað verður við þá gert?