21.11.1933
Neðri deild: 15. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í B-deild Alþingistíðinda. (135)
2. mál, kosningar til Alþingis
Frsm. (Eysteinn Jónsson):
Við frsm. stjskrn. höfum skipt þannig með okkur verkum, að hv. þm. Snæf. talar fyrir till. n. við þessa umr., en ég tala um afstöðu hennar til annara brtt., sem fram hafa komið. N. hefir ekki sem heild tekið afstöðu til allra brtt., og mun ég fyrst tala um þær, sem hún hefir tekið afstöðu til í heild.
Hv. 2. þm. N.-M. flytur brtt á þskj. 73. Ég ætla fyrst að fara nokkrum orðum um þær af till. hans, sem fara fram á efnisbreyt., en síðar mun ég gefa nákvæmt yfirlit um, hverjar af till. n. leggur til, að verði samþ., svo hv. þm. gefist tækifæri til að merkja við þær á sínum þskj. og athuga afstöðu sína til þeirra.
Það er þá fyrst 2. brtt., við 6. gr. N. getur ekki fallizt á þá breyt., sem hv. þm. fer þar fram á. N. ætlast til, að öllum kjördeildastofnunum sé skotið undir samþykki yfirkjörstjórnar, svo hún geti haft yfirlit um það, hvort við kjördeildaskiptingu er gætt fullrar sanngirni gagnvart hreppsbúum. Auðvitað er hægt að beita ósanngirni við skiptingu hreppa í kjördeildir, og við því er frekar hætt, ef aðili innan hreppsins hefir einn úrskurðarvald þar um, heldur en ef málinu er skotið til fjarlægari aðila, sem þó er nægilega kunnugur og getur litið hlutlaust á málið.
Þá hleyp ég yfir nokkrar brtt. og tala næst um 10. brtt, við 27. gr. Um hana er n. ekki alveg einhuga, og hafa um. um hana óbundin atkv. Þessi till. fer fram á að fella niður þá yfirlýsingu flokka um fylgi þeirra við frambjóðendur, sem frv. gerir ráð fyrir, að þurfi að fylgja framboðum þeirra, sem bjóða sig fram fyrir ákveðinn stjórnmálaflokk. Tveir af nm. flytja miðlunartill. milli þeirra leiða, sem frv. og brtt. hv. 2. þm. N.-M. gera ráð fyrir. Er hún í því fólgin, að í staðinn fyrir yfirlýsingu flokksstjórnar geti komið prófkosning innan viðkomandi kjördæmis, sem flokkurinn tekur gilda. Ég fyrir mitt leyti er því mótfallinn, að felld verði niður þau ákvæði frv., sem tryggja, að flokkarnir geti látið uppi á skipulegan hátt, hver er raunverulega í kjöri fyrir þá í hverju kjördæmi. Ef slík ákvæði eru ekki og hver sem er getur boðið sig fram og sagzt vera fyrir þennan og þennan flokk, er hætt við, að gangskör yrði gerð að því að fá menn til að komast inn á kjörseðil undir flokksheiti til þess að rugla kosninguna. Hitt skal ég viðurkenna, að segja má, að með því að gefa flokkstjórnum vald til að lýsa því yfir, hverjir séu í framboði fyrir flokkinn, geti verið nokkur hætta á yfirgangi flokkstjórna við að ákveða, hvort framboð eru fullgild, en ég held, að lítil hætta sé á, að kjósendur haldi ekki sínum rétti gagnvart flokksstjórnum. Ég get þó til miðlunar gengið inn á brtt. á þskj. 90, um það, að kjósendur í hverju héraði ráði framboði, ef prófkosning hefir farið fram þar með hæfilegu móti. En ég vil vara við hinu, að láta þetta atriði liggja svo laust sem lagt er til á þskj. 73, brtt. 10, því með því móti er áreiðanlega hægt að koma við kosningabrellum. Eftir þeirri brtt. getur hver frambjóðandi sem vill, með því sjálfur að gefa yfirlýsingu um, að hann tilheyri einhverjum ákveðnum flokki, komizt á atkvæðaseðil sem frambjóðandi þess flokks. Samkv. frv. á að raða frambjóðendum á atkvæðaseðil eftir flokkum, en ekki eftir stafrófsröð eins og núgildandi kosningalög mæla fyrir; þess vegna ríður meir á því en áður, að það liggi ljóst fyrir, hverjir séu í raun og veru frambjóðendur hvers flokks. Það má náttúrlega segja, að hægt sé fyrir viðkomandi flokkstjórn að gefa yfirlýsingu um, að einhver maður sé ekki viðurkenndur frambjóðandi þess flokks, sem hann telur sig vera fyrir, en þrátt fyrir það hefir þessi maður komizt á kjörseðil sem flokksframbjóðandi aðeins fyrir eigin yfirlýsingu. Það væri heppilegast að samþ. ákvæði 27. gr. frv. óbreytt, til þess að fyrirbyggja það alveg, að frambjóðendur verði taldir á atkvæðaseðli til flokka, sem e. t. v. vilja ekki við þá kannast.
Þá skal ég snúa mér að þeim brtt. á þskj. 73, sem fjalla um utanflokkaframbjóðendur. Þar er utanflokkamönnum gefinn réttur, að mér skilst, til þess að bera fram landslista. Nú vil ég benda á það, að slík ákvæði geta ekki með nokkru móti samrýmzt hvorki stjórnarskrárbreytingunum, sem verið er að samþ., eða ákvæðum kosningalagafrv. Tilgangur stjórnarskrárákvæðanna um landslista og uppbótarþingsæti er sá, að hópur manna víðsvegar um landið, sem vegna svipaðra skoðana hafa myndað flokk, skuli með úthlutun uppbótarþingsæta fá nokkra uppbót á sitt þingfylgi, ef þeir hafa farið illa út úr kjördæmakosningum. En það getur ekki komið til mála, að utanflokkamenn víðsvegar af landinu, sem engin trygging er fyrir, að hafi neitt svipaðar skoðanir eða kjósi saman við kjördæmakosningar, geti haft landslista og fengið uppbótarsæti. Auk þess veit ég ekki, hvernig hægt verður að koma fyrir framboði landslista, sem skipaður á að vera utanflokkamönnum. Slíkur listi gæti alls ekki fram komið án þess að þeir, sem á honum væru, mynduðu samtök með sér, og ef þeir mynda slík samtök, þá geta þeir talizt stjórnmálaflokkur og hafa þá rétt til að bjóða fram lista án þess að fyrir þá séu sett nokkur sérákvæði. Það er því þetta tvennt, sem ég hefi við þessar brtt. að athuga. Í fyrsta lagi, að mér finnst það algerlega fara í bága við ákvæði stjskr., að utanflokkamenn bjóði fram landslista, þar sem aðeins stjórnmálaflokkar hafa rétt til þess, og í öðru lagi, ef þessir menn slá sér saman til þess að mynda lista, þá hljóta þeir um leið að hafa myndað flokk um þann lista og hafa þá öðlazt réttinn af sjálfu sér.
Þá skal ég snúa mér að 18. brtt. á sama þskj., við 113. gr., um það, hvernig ógilda skuli atkvæðaseðla. Eins og hv. 2. þm. N.-M. tók fram, þá eru ákvæði þessi einskonar próf, en ég mótmæli því, að þau séu nokkurt gáfnapróf. Hér er lagt til, að atkv. sé ógilt fyrir hlægilega litla galla, og ég tel það beint hættulegt að setja svo ströng ákvæði eins og t. d. það, að utankjörfundarseðill sé ógildur fyrir það, þó að stafvilla sé í nafni þess, sem kosinn er. Ég vil benda á það sem dæmi, ef nafnið Halldór væri skrifað Haldór, þ. e. með einu l, eða ef gleymdist að setja kommuna yfir ó-ið, þá á að gera atkv. þessa kjósanda ógilt. Mér finnst slíkt óhæfilegt. Það verður að vera aðalregla að taka atkvæðaseðil gildan, þegar það kemur ljóst fram, við hvern er átt, og ekki verður ágreiningur um það í kjörstjórn' Ég vil í þessu sambandi benda á það, að líklegra er, að þeir, sem vinna við skriftir, standist fremur þetta próf heldur en verkamenn, sem vanari eru öðrum störfum, en það væri enginn mælikvarði á gáfur eða stjórnmálavit þessara manna. Verkamaðurinn, sem gleymir l-inu í Halldór, þarf ekki að vera ógreindari en hinn, eða þó hann skrifi í fyrir y í nafni frambjóðanda (Dómsmrh: T. d. í Eysteinn). Já, t. d. það. Það sýnist harla óréttmætt að ógilda atkv. fyrir það.
Þá er 20. brtt., um að fella niður 115. gr. frv., sem hv. þm. sagði, að ætti að koma í veg fyrir stjórnarskrárbrot. Ég vil taka fram, að þetta var sérstaklega athugað í n., og það var einróma álit hennar, að ákvæði þessarar greinar væru ekki stjórnarskrárbrot, en þau eru um það, að þótt kjósandi setji kosningarmerki á landskjörseðil eftir að hafa kosið frambjóðanda í kjördæminu, skuli atkv. hans eigi ógilt, ef merkt er við landslista þess flokks, sem frambjóðandinn er í, er hann kaus. Byggist þetta á því, að sá maður, sem kosið hefir frambjóðanda ákveðins flokks, hefir líka greitt atkv. sitt landslista þess sama flokks, og virðist þá hlægilegt að ógilda atkv. hans, þó hann merkti við þann landslista, sem hann hefir þá raunverulega þegar kosið. Auk þess vill n. með þessari gr. taka það fram, að ekki megi sami maður kjósa frambjóðanda eins flokks, en landslista annars flokks. — Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða neitt frekar um þessi atriði.
Skal ég þá víkja að þeim brtt. á þessu þskj., sem n. leggur til, að verði samþ. Það er þá fyrst 4. brtt., við 9. gr. frv., sem er aðeins orðabreyt. til bóta. 5. brtt., við 17. gr., er það einnig. Sama er að segja um 7. brtt, við 24. gr., og 8. brtt., við 25. gr. Með þeirri brtt. er einnig bætt inn í frv. ákvæðum, sem þurfa þar að vera, og fellst n. að sjálfsögðu á þessa brtt. Þá eru 13. og 14. brtt. sömuleiðis orðabreyt. til bóta, og ennfremur 16. brtt. a-liður. Ég hirði ekki um að fara að ræða þær brtt., sem aðeins eru orðabreyt. og n. hefir ekki getað fallizt á. Ég tek aðeins undir það með hv. flm., að þær eru flestar smekksatriði, sem vitanlega koma undir úrskurð hv. þdm.
Þá liggur hér fyrir brtt. á þskj. 86, og þó n. hafi ekki sameiginlega getað tekið afstöðu til þeirra, ætla ég samt að fara um þær nokkrum orðum frá eigin brjósti. Fyrsta brtt. á þessu þskj. er sama efnis og brtt. hv. 2. þm. N.-M. um að fella niður úr 27. gr. frv. skilyrði um, að flokksstjórnir viðurkenni framboð einstakra frambjóðenda fyrir flokkinn og ennfremur lista. Get ég því út af þessari brtt. vísað til þess, er ég sagði um brtt. á þskj. 73 sama efnis.
Ein aðalbreytingin, sem felst í brtt. á þskj. 86, er sú, að öllum flokkum sé skylt að hafa á landslista nöfn frambjóðenda sinna. Ég vil taka það fram, að um þetta var töluvert rætt í undirbúningsnefndinni. Þótti n. með hliðsjón af því samkomulagi, sem varð milli flokkanna á síðasta þingi um skipun landslista, vera rétt að setja það ákvæði í frv., að flokkarnir hefðu nokkuð óbundnar hendur um skipun landslista. Ég skal ekki deila um þetta atriði að þessu sinni, en mér finnst rétt, með hliðsjón af því, sem á undan er gengið í málinu, að báðir þessir möguleikar eigi að vera fyrir hendi. Það er hægt að hugsa sér, að sumir stjórnmálaflokkar hafi ekki frambjóðendur í öllum kjördæmum og að aðrir hafi aðeins frambjóðendur í fáum kjördæmum, en þá væri rangt að lofa þeim ekki að raða fleiri mönnum á landslista en flokkurinn hefði í framboði í kjör dæmunum. Auk þess er með því að hafa alla frambjóðendur á landslista lítið gert úr þeim ákvæðum stjskr., þar sem gert er ráð fyrir tveim möguleikum: að landslista skipi frambjóðendur í kjördæmum, og að flokkstjórn hver raði mönnum á landslista síns flokks. Mér finnst nefnilega, að réttur flokkanna til að hafa lista sé nálega að engu hafður, ef ekki er um aðra leið að ræða um skipun listans en þá, að raðað sé á hann eftir kosningar aðeins nöfnum þeirra frambjóðenda, sem ekki hafa náð kosningu í kjördæmunum, og svo er sá listi kallaður landslisti. Það virðist sanngjarnt, að báðir þeir möguleikar um skipun landslista, sem frv. gerir ráð fyrir, séu opnir, og engin hætta er á því, að það fyrirkomulag feli ekki í sér nægilegt aðhald fyrir flokkstjórnirnar frá kjósendunum í kjördæmunum, svo að þær taki sér ekki hér of mikið vald. Ég mun því greiða atkv. móti þessum brtt.
Þá breiddi hv. þm. V.-Húnv. sig út yfir það, að ég hefði viljað fara aftan að hv. þdm. með því að koma á hlutfallskosningu í tvímenningskjördæmum (sbr. 117. gr. frv.). Ástæðan til þess, að bæði ég og aðrir í n. hurfum að því ráði að vilja breyta þessu atriði í frv., sem hv. þm. á hér við, var sú, að það kom í ljós við nánari athugun, að eins og ákvæði frv. voru, var hægt að koma fyrir hættulegum kosningabrellum. Þó hv. þm. álíti mig og meðnm. mína minni menn fyrir að koma ekki auga á þetta fyrr, þá verður við það að sitja, því við tókum ekki eftir þessu fyrr en frv. var komið fyrir þessa hv. deild. — Held ég þá, að ekki sé fleira, sem ég þarf að svara að þessu sinni.