20.11.1933
Efri deild: 14. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í C-deild Alþingistíðinda. (1361)

38. mál, undanþága frá áfengislöggjöfinni

Guðrún Lárusdóttir:

Ég skal ekki tala langt mál, því að það mun vera þýðingarlaust. Ég get ekki fallizt á skilning hv. flm. á atkvgr. minni um þáltill. í þessu máli á síðasta þingi. Atkvæði mitt þá þýddi ekkert annað en það, að ég vildi gefa öðrum mönnum kost á að láta í ljós sína skoðun á þessu ágreiningsmáli. Því skyldi ég ekki geta lagt það undir dóm annara manna án þess að skuldbinda sjálfa mig til að skipta um skoðun? (PM: Þá var meiningin, að þjóðin sjálf ætti að ræða). Já, þjóðin sagði sitt álit um það. En hún hefir ekki aðstöðu til að breyta áfengislöggjöfinni með því einu að segja já eða nei. Ég verð því að halda fast við þá skoðun mína á málinu, að atkv. mitt sé óbundið, þrátt fyrir atkvgr. um þáltiIl. í vor. Og af því að ég álít, að tilslökun á bannlögunum verði, eða að mjög hætt sé við að hún verði til ógagns og bölvunar fyrir þjóðina, þá álít ég, að það sé mín móralska skylda að greiða atkv. eftir sannfæringu minni á móti frv., sem ég þykist vera viss um, að muni auka vínnautn í landinu, ef það nær samþykki.

Hv. 2. þm. Rang. hlýtur að skiIja það, að mér er bindindismálið mikið áhugamál, þar sem ég hefi varið miklum tíma æfinnar fyrir það mál. Ef ég svo færi að hlaupa frá sannfæringu minni í þessu efni, þá mundi ég sannarlega brjóta í bága við mína mórölsku skyldu. Menn höfðu búizt við því, að hæstv. stj. legði fram frv., sem allir gætu við unað, en ekki við því, að hér yrði borið fram frv. um stóreflis undanþágu frá bannlögunum, sem fyrst og fremst þýðir það, að innflutningur eykst til muna, og þá einnig vínnautn; því að ég geri ekkert úr því, sem hv. 2. þm. Rang. sagði, að vínnautn ykist ekki við aukinn innflutning. Og til hvers er þá verið að flytja þetta vín inn? Hvað á þá að gera við það, ef ekki á að drekka það? því það liggur í hlutarins eðli, að ef innflutningur eykst, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., þá er ekki nokkur efi á því, að meira verður drukkið, ofan í einhvern fer það, og verkanirnar þekkjum við öll. — Hv. 2. þm. Rang. benti á ýmislegt, sem ég ætla ekki að svara sérstaklega nákvæmlega, því að ég vil ekki tefja umr. Hann sagði, að ástandið hefði batnað í þeim löndum, sem hefðu afnumið bannlögin, sektir hefðu minnkað o. fl. þessh. En það fer nú tvennum sögum um þetta, og það mun víst, að einmitt síðan bannlög voru afnumin í Finnlandi, þá hafa sektir fyrir bruggun gífurlega aukizt, og þrátt fyrir það, þótt Finnar hafi haldið öllum sínum varnarákvæðum og jafnvel bætt við þau, þá hefir samt bruggið aukizt. Hvað yrði þá hér, þar sem eftirlitið er erfitt og ónógt? Ég hygg, að það myndi ekki batna stórlega. Að minna yrði drukkið, ef meira vín kæmi inn í landið, er hreinasta villa. Hann talaði um, að ökonomiska hliðin væri aðalatriðið. Það er ekki rétt. Aðalatriðið er siðferðislega hliðin — hliðin, sem snýr að einstaklingunum og heimilunum. Það er hlið bölvunarinnar, sem alla jafnan er í för með áfenginu. Ég held ég geti ekki, hve fegin sem ég vildi gera það fyrir hv. 2. þm. Rang., greitt atkv. með þessu frv. Það er sannfæring mín, að það væri til ills fyrir þjóðina að skella þessari aukningu inn án nokkurrar reglugerðar eða nánari ákvæða.

Ég þarf ekki að bæta fleiru við. Ég vona, að öllum sé það ljóst, hvar ég stend og hefi staðið og vonast til, að ég standi framvegis í bindindismálinu. Hvað þjóðarviljann snertir, þá skal ég þegar taka það fram, að þótt minni hl. sé minni hl., þá hefir hann sýnt sinn vilja og hann hefir rétt til þess, að einnig sé tekið tillit til þess vilja. Það eru heil héruð í landinu, sem hreint og beint vilja bann, eða eru hlynnt banni, og það væri hart fyrir þau að verða þvert á móti vilja sínum að opna fyrir víni eða sætta sig við, að samþ. yrði svona lagað frv.