20.11.1933
Efri deild: 14. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 214 í C-deild Alþingistíðinda. (1364)
38. mál, undanþága frá áfengislöggjöfinni
Magnús Jónsson:
Hv. 1. flm hefir nú svarað þeim andmælum, sem komið hafa fram gegn frv., og ég skal ekki tefja með því að endurtaka það. Virtist hann ganga svo frá því máli, að meiru er ekki þörf á fyrir þá, sem eru að meta rök með og móti. Ég vil aðeins segja örfá orð út af aths. hv. 2. þm. S.-M. Hann taldi það valda mestu um, hvað atkvgr. um þetta mál var lítið sótt, að hún hefði verið á óhentugum tíma. Ég hygg, að ef farið er yfir atkv.tölurnar, komi í ljós, að kjörsókn er ekki minnst þar, sem þeir erfiðleikar hafa verið mestir fyrir hendi. Ég hygg það mestu hafa valdið, að ýmsir menn hafa verið efablandnir um, hvað þeir ættu að gera. Það eru menn, sem þykir í aðra röndina hart að þurfa að láta undan í þessu máli, en sjái á hinn bóginn þá sorglegu reynslu, sem orðið hefir af banninu, og hugsa því, að bezt sé að sitja heima og láta málið eiga sig. Bæði vakir fyrir mörgum það, sem ég talaði um í minni fyrri ræðu, að málið er smávægilegt í ýmsra augum, hvort rétt sé að heimila að flytja inn þá drykki, sem enn er verið að streitast á móti. Það er venjulegt, að kosningar um mál, sem ekki varða miklu, verða ekki vel sóttar. Hv. hm. talaði aftur um rétt minni hl. það hljómar fallega og virðist vera sanngjarnt. En úr því að vér byggjum okkar þjóðfélag á rétti meiri hl., er ómögulegt að gera annað en þá kröfu til minni hl., að hann lati undan. Við skulum athuga þá kosningu, sem mestu varða: hér á landi — alþingiskosningarnar —, þar sem ekki fara fram hlutfallskosningar. Meiri hl. sendir jafnvel í tvímenningskjördæmum báða mennina á þing. Þar hefir minni hl. engan rétt og verður að beygja sig. Hann getur að vísu búið sig undir að sigra næst og treysta á, að skoðanabræður annarsstaðar fái fulltrúa, en við atkvgr. verða þeir að láta í minni pokann, alveg eins og meiri hl. sameinaðs þings kýs forseta á þess að minni hl. fái nokkur ítök í honum. En það verður að segja, að ákaflega mikið tillit er tekið til minni hl. í þessu frv., þar sem öll áfengislöggjöfin með öllum heim skorðum, sem þar eru settar við misnotkun áfengis, er látin haldast óbreytt, og var að auki sett heimild til sérákvæða út af nýju drykkjunum. Ég get ekki séð annað en að með þessu sé tekið það tillit til minni hl., sem yfirleitt er mögulegt, því að ekki er bæði hægt að banna og leyfa innflutning áfengra drykkja. Hv. I. landsk. taldi, og það með réttu, að megingallinn á núv. áfengislöggjöf væri þessar óhæfilegu refsingar, sem líka eru mikil orsök þess, hve erfitt hefir verið að framfylgja lögunum; hvorki uppljóstrunarmenn eða dómarar geta fengið sig til þess að koma nokkru upp, vegna þess hve mikið það kostar hlutaðeigendur. En það er áreiðanlegt, að það er engin bót í þessu máli að láta l. standa óbreytt til næsta þings. Þþví verður ekki neitað, að með samþykkt þessa frv. fækkar stórlega þeim brotum og tilhneigingu til að smygla inn óleyfilegum drykkjum, og þá er þó létt af talsvert miklum freistingum. Menn geta sagt, að refsingarnar séu pa orðnar nær sanni. Brotið verður svívirðilegra, þegar þannig er farið framhjá l., ennþá meira að óþörfu, og þess vegna ekki jafnskert réttartilfinning manna, þótt hart sé refsað. En ég get sagt hv. þm., hvað olli því, að við bárum hetta þannig fram. Það var einungis af því, að reynsla tveggja undanfarinna þinga hefir sýnt, að það kemur til með að kosta mjög mikinn tíma að fá setta nýja áfengislöggjöf.
Önnur leið en að afnema núgildandi áfengislög, sem líka gat verið hugsanleg, var að setja í þess stað fyrirmæli um, að áfengismálunum skuli skipað með reglugerð til næsta Alþingis. En við flm. þessa frv. þorðum ekki að bera það fram í því formi. Þá hefðu andstæðingarnir auðvitað borið fram þá ástæðu, að málinu væri hent út í fullkomna óvissu.
Ég viðurkenni, að það er ákaflega mikill galli að þurfa að láta þessi hræðilegu refsiákvæði vera áfram í lögunum þangað til á næsta þingi, en það verður ekki úr því bætt með því að fella rétta frv.
Ég skal svo að lokum segja fáein orð út af því, hvers vegna ég er dálítið undrandi yfir því, ef frv. getur ekki náð fram að ganga. Mér heyrist á sumum andmælendum þessa frv., að þeir gangi út frá því, að bannið verði afnumið á næsta þingi, og mér skilst, að þessir hv. þm. geti verið með þáltill. í þá átt að fela ríkisstj. að undirbúa þetta mál fyrir næsta þing. Ég held, að allir andmælendur þessa frv. hafi látið skína í þá skoðun, að aðeins ef málið væri vel undirbúið, mundu þeir fylgja frv. En ef það er sannfæring hv. hm., að næsta Alþ. beri að setja nýja áfengislöggjöf, þar sem heimilaður er með allskonar skorðum og skilyrðum innflutningur allra áfengra drykkja, þá finnst mér sjálfsagt að samþ. þetta frv., sem hér liggur fyrir, því að ég er sannfærður um, að sú reynsla, sem fengist á heim tíma, sem er þangað til næsta Alþ. kemur saman, geti orðið að gagni við tilbúning nýrra áfengislaga. Ég er sannfærður um, ef skipa á n. til þess að undirbúa áfengislöggjöfina undir næsta þing, að hún getur betur innt starf sitt af hendi, ef einhver reynsla er fyrir hendi í þessum efnum, og hún gæti í ljósi þeirrar reynslu sett skorður eða ekki skorður, sem þörf er á að setja í slíka löggjöf. Þess vegna held ég, að samþykkt þessa frv. mundi búa talsvert í haginn og verði til þess, að betur verði úr garði gerð sú áfengislöggjöf, sem næsta þing verður væntanlega að setja. Þó skil ég það ákaflega vel, að það er dálítið leiðinlegt, að atkvæðagreiðslunni er vart lokið, þegar rokið er í það að leyfa innflutning á sterkum drykkjum. Það er dálítið í mér af þeirri tilfinningu, að það sé af því, að mann sé farið að langa svo mikið til þess að afnema þessi höft, að það megi ekki dragast deginum lengur. En ég held, að við verðum að beygja þessa tilfinningu, sem orsakast af þeim atvikum, að örstutt þing situr rétt þessa dagana, sem úrslitin eru að fréttast, og við verðum að láta hana víkja fyrir því, að áfengislöggjöfin, sem væntanlega verður lögð fyrir næsta þing, verði sem bezt úr garði gerð. Og ég er sannfærður um, að hún verður betur úr garði gerð, ef þetta frv. verður samþ. og reynsla fæst á þessum mánuðum, sem líða þangað til næsta þing kemur saman, og ég held, að enginn geti látið sér til hugar koma, að á þessum 7 til 8 mánuðum geti skeð nein ósköp, sem ekki er hægt að bæta fyrir.