20.11.1933
Efri deild: 14. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 220 í C-deild Alþingistíðinda. (1367)
38. mál, undanþága frá áfengislöggjöfinni
Flm. (Pétur Magnússon):
Ég get fullkomlega tekið undir það, sem hv. 6. landsk. sagði, að það ber að líta á þetta mál frá sjónarmiði allrar þjóðarinnar, en ekki hvers einstaks kjördæmis. Hitt er ekki nema mannlegt, að fulltrúar þeirra kjördæma, sem fastast standa með afnámi bannsins, beiti sér frekar fyrir málinu en hinir, sem ef til vili eru í andstöðu við meiri hl. í kjördæmum sínum.
Annars var það aðeins stutt aths.. sem ég ætlaði að gera út af því, sem komið hefir fram. Ég benti á það, þegar ég talaði fyrst fyrir þessu máli hér í hv. d., að við flm. vildum halda okkur í lagasetningunni fyrir innan þau takmörk, sem þjóðaratkvgr. hefir sett. Við vildum ekki taka með nein ákvæði önnur en þau, sem voru óhjákvæmileg afleiðing af atkvgr. Þess vegna bundum við okkur við það eitt að nema úr gildi þær hömlur, sem eru á innflutningi vissra tegunda áfengra drykkja. En við komum ekki með neina till. um að breyta öðru í áfengislöggjöfinni, eins og tekið var fram strax, en sáum þó, að fleira þurfti endurbóta við. Það var fyrst og fremst af þeirri ástæðu, að við töldum ekki von til þess, að samkomulag fengist um gagngerða breyt. að þessu sinni, en töldum þó sjálfsagt, að þessi breyt. mundi ná fram að ganga, þó að reynslan ætli kannske að verða önnur.
Það kom fram hjá hv. 3. landsk. og hv. 2. þm. S.-M., að höfuðannmarkinn á frv. sé sá, að ekki séu settar nægilega viðtækar heimildir og strangar reglur um sölu og meðferð þessara drykkja, sem hér um ræðir. Út af þessu vil ég lýsa því yfir hvað mig snertir, að ég er fús til samvinnu við þessa hv. þm. um endurbætur á frv., ef þeir telja þær heimildir, sem 2. gr. hefir inni að halda, ekki nægilega víðtækar. Ég á sæti í n. þeirri, sem væntanl. fær málið til meðferðar, og mun ég fús til að taka til athugunar sérhverjar brtt. frá þeim, sem kynnu að fara í þá átt.
En ég sé hinsvegar ekki, að bein ástæða sé til að setja inn í frv. frekari ákvæði en felast í 2. gr. Það má ganga út frá, að stj. sjái sinn hag í því að búa sem bezt um hnútana og fari að óskum þeirra héraða, sem kynnu að vilja fá frekari heimildir en þær, sem nú eru í lögum.
Ég kann heldur illa þeim hálfkveðnu aðdróttunum, sem komið hafa fram í garð okkar flm., þess efnis, að við flytjum frv. þetta í því skyni að auka ofnautn áfengis í landinu. Ég get ekki fundið, að við höfum gefið neitt tilefni til þess. Við höfum gengið með opin augu og því séð, að það ástand, sem nú ríkir og ríkt hefir að undanförnu í þessu efni, er með öllu óviðunandi. Og við viljum bæta úr því á þann hátt, er við teljum skynsamlegastan. Mér kemur heldur ekki til hugar að drótta því að andmælendum þessa frv., að þeir beiti sér móti því af illum hvötum, af því þeir vilji viðhalda lögbrotum, smygli, bruggi og öllum þeim ósóma, sem fylgt hefir áfengislöggjöfinni. Ég held, að þeir geri það blátt áfram af því, að þeir hafi gengið með lokuð augu og því ekki getað lært af reynslunni.