28.11.1933
Neðri deild: 21. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 150 í D-deild Alþingistíðinda. (1369)

78. mál, launauppbót talsímakvenna

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Ég vil geta þess, að samskonar heiðni og nú er komin hér fram hefir komið til mín. og sá ég mér ekki fært að verða við henni, þar sem laun þessa starfsfólks eru lögákveðin. Það er erfitt fyrir stj. að víkja frá launal. upp á sitt eindæmi, því að hætt er við, að þá yrði ákaft sótt á hana um launahækkanir. En ég vil taka það fram, að þótt ég þættist neyddur til þess að neita þessari beiðni meðan engin heimild lá fyrir frá Alþingi um það, þá er ég því hlynntur, að þessi uppbót verði veitt. Laun þessa starfsfólks eru svo lag, að varla er við þau unandi. Ég vil geta þess, að fleiri starfsmenn hafa farið fram á svona uppbót, og mun ég senda n. þeirri, sem fær þetta mál til meðferðar, erindi frá öðrum flokki símamanna, og er það skylt efni.