04.12.1933
Neðri deild: 25. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í D-deild Alþingistíðinda. (1372)
78. mál, launauppbót talsímakvenna
Frsm. (Hannes Jónsson) [óyfirl.]:
Hér kemur nú eitt launahækkunarmálið enn, sem fjhn. mælir með, að verði samþ. Laun þessa starfsfólks hafa frá byrjun verið mjög lág. Var í fyrstu svo ákveðið með tilliti til þess, að gengið var út frá því, að þessi störf yrðu ekki stunduð af sama fólki nema um stuttan tíma og að þau yrðu ekki föst störf. En eins og menn vita, eru þetta nú orðin föst störf. Af þeim ástæðum var farið að hækka laun fyrir þau tiltölulega fljótt. Árið 1926 voru hækkuð laun hjá einum flokki þessa starfsfólks, símriturum. Hjá þeim eru hámarkslaun 2800 kr. Þeir fengu þá uppbót, kr. 150 á 4 síðustu aldursviðbæturnar, samtals kr. 600 með verðstuðulsuppbót.
Annar launaflokkur: Varðstjórar o. fl. Hámarkslaun þeirra eru 2200 kr., uppbót kr. 100 á 3 síðustu aldursviðbæturnar, samtals 300 kr. með verðstuðulsuppbót.
Nú kemur þessi síðasti launaflokkur, sem fer fram á að fá samskonar uppbót á sín laun. Ef fylgt væri sömu hlutföllum um launauppbót handa þessum flokki eins og fylgt hefir verið um hina flokkana, þá ætti þessi launaflokkur að fá 200 kr. uppbót, eða 100 kr. á 2 síðustu aldursviðbæturnar. En nú hefir verið lagt til, af því að hér er um svo lágt launaðan flokk að ræða, að launauppbót sú, sem þessi flokkur fengi, yrði sú sama og hjá varðstjórunum. Það sýnist ekki ástæða til að þrátta um það, hvort tiltaka eigi 200 eða 300 kr. í þessu sambandi. Ég get því lýst því yfir, að n. leggur til, að uppbótin verði 300 kr., eða 100 kr. á hverja af þeim 3 síðustu aldursviðbótunum. Enda eru hámarkslaun þessa launaflokks ekki nema 1800 kr. Með dýrtíðaruppbót, 25% bætast svo við 450 kr.
Ég hefi verið á móti því á síðustu þingum að framlengja dýrtíðaruppbót, og ég bjóst við, að þessi dýrtíðaruppbót yrði ekki framkvæmd, og fannst mér því meiri ástæða til, að þessi launauppbót kæmi til þessara mjög lágt launuðu starfsmanna ríkisins. Þessir starfsmenn hafa fengið nokkra launauppbót, sem farið var að veita þeim fyrir 2 eða 3 árum, sem er 5 aur. á hvert viðtalsbil, sem hefir orðið kringum 150 kr. fyrir hvern starfsmann. þessir starfsmenn hafa því nú um 2400 kr., ef gert er ráð fyrir, að dýrtíðaruppbótin, 25%. Verði samþ., en annars ekki nema 1950 kr.
Þegar breyt. var gerð á launum starfsfólks símans 1926 og 1929, þá var þessi lægst launaði flokkur þess látinn sitja á hakanum. Og fyrir þær ástæður gat ég fyrir mitt leyti fallizt á þessa breyt., þó að ég sé að öðru leyti á móti því að breyta launalagaákvæðunum án þess að lögin séu í heild tekin til athugunar. Allra sízt er ég með því að breyta launalagaákvæðum á þessu þingi, þegar liggur fyrir að breyta þessum hlutum á næsta þingi. En ég vænti þess samt, að þau rök, sem færð hafa verið fram fyrir réttmæti þessara breyt., verði tekin til greina, þegar þingið virðist fast til að hjálpa öðrum Starfsmönnum, sem til muna eru betur settir en aðrir.