04.12.1933
Neðri deild: 25. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 152 í D-deild Alþingistíðinda. (1373)

78. mál, launauppbót talsímakvenna

Héðinn Valdimarsson:

Ég á hér litla brtt. um það, að bæjarpóstunum í Rvík verði greidd sama dýrtíðaruppbót eins og öðrum opinberum starfsmönnum. Laun þeirra voru lækkuð um 15%, eins og ýmissa annara opinberra starfsmanna, en hálfu ári fyrr en annara. Kjör þeirra eru miklu verri en annara starfsmanna pósthússins; þeir fá ekki kaup fyrir eftirvinnu, sem bætir laun ýmissa starfsmanna þar, né þóknun af frímerkjasölu, og einkennisbúninga hafa þeir ekki fengið eins og t. d. hafnsögumenn Rvíkur. En bæjarpóstar hafa oft áaflega mikið starf.

Ég hefi borið þetta undir hæstv. fjmrh. og dómsmrh., sem þetta mál heyrir undir, og þeir hafa fyrir sitt leyti samþ. það. Aftur á móti hefi ég ekki getað komið málinu fyrir fund hjá fjhn., en náð í nokkuð af meðlimum hennar, og þeir mundu samþ. till. fyrir sitt leyti; vænti ég því þess, að brtt. þessi nái fram að ganga.