29.11.1933
Sameinað þing: 6. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 404 í D-deild Alþingistíðinda. (1393)
57. mál, varalögregla
Flm. (Héðinn Valdimarsson):
Ég man ekki betur en að hæstv. dómsmrh. lýsti yfir því, þegar frv. um lögreglumenn var til umr. í fyrra, að ef það yrði samþ., skyldi varalögreglan lögð niður. En hún er þó enn „starfandi“. Nú er þó komið svo langt, að hann ætlar, ef hann verður ráðh. áfram, að leggja hana niður um áramot. En flokksmenn hans vilja ekki ganga lengra með þessari dagskrá en að hún verði „bráðlega“ lögð niður, og það getur væntanlega teygzt eitt árið í viðbót.
Viðvíkjandi síðari liðnum, að hann brjóti í bága við gildandi lög, þá er það hrein og bein hugsunarvilla. Í lögunum er engin skylda fyrir ráðh. að stofna til varalögreglu, heldur er honum heimilt, undir sérstökum kringumstæðum, að stofna til varalögreglu. Vænti ég, að hv. þm. skilji, að heimildarlög eru ekki skuldbindandi fyrir stj. Till. þessi gengur einungis út á það, að stj. nóti ekki þá heimild, sem í l. er um stofnun varalögreglu, og er þá miðað við núv. ástand og það, að lögreglunnar hefir aldrei verið þörf. Nokkrir menn úr henni hafa verið notaðir við smávegis uppþot, sem fastalögreglan hefði eins getað unnið sjálf. Og það, sem hæstv. dómsmrh. var að minnast á, að varalögreglan hefði varið mig í „Iðnó“, þá er það rangt. Það komu einungis tveir lögregluþjóðar niður eftir, og mér vitanlega vörðu þeir engan mann, enda var þess ekki þörf. — Stefnan hjá hv. þm. G.-K. virðist vera mjög greinileg, og einnig hjá ráðherranum, um að nota varalögregluna allt öðruvisi en ætlazt er til og þveröfugt ofan í allar reglur. Hæstv. dómsmrh. kvaðst ekki skilja, hvernig gæti á því staðið, að stofnun varalögreglunnar nú væri þvert ofan í lög. En það þarf einungis að benda honum á 1. gr. laga um lögreglumenn. Þar stendur: „Ríkisstj. er heimilt, að fengnum tillögum bæjar- eða sveitarstjórnar, að fyrirskipa, að í bæjum (kaupstöðum og kauptúnum), þar sem eru 1000 íbúar eða fleiri, skuli vera allt að tveimur starfandi lögregluþjónum á hverja 1000 íbúa, enda sé lögreglustjóri þar búsettur“. Það svarar til, að 60 lögregluþjónar ættu að vera í Rvík. Svo stendur í 6. gr., að þegar sérstaklega stendur á og ráðherra telur nauðsynlegt öryggi bæjar, að lögregluliðið sé aukið meira en í 1. gr. segir, þá geti hann bætt við varalögreglu o. s. frv. Nú er ekki um það að ræða hér, að neitt af þessum skilyrðum sé fyrir hendi. Bæjarstj. Rvíkur hefir ákveðið að samþ. að stofna til varalögreglu, meðan ekki er starfandi nema 41 lögregluþjónn. Það er þvert ofan í lögin. Og ef ráðh. ætlar sér að verða við þessu, þá mun hann líka brjóta þessa grein laganna. Og mig furðar það reyndar ekki svo mjög, vegna þess hvernig hann hefir áður hagað sér í þessu lögreglumáli. En það fólst í orðum hans, að varalögreglan myndi verða skipuð eftir þessum till. bæjarstj., en hann vildi hara ekki segja, hversu fjölmenn hún yrði. Ég vil því enn benda á, að það er lögbrot, verði það gert eftir lögunum frá í fyrra, áður en búið er að fullnægja þessum tveim skilyrðum, að 60 manna fastalögregla sé þegar komin í Rvík og að varalögregla sé nauðsynleg vegna öryggis bæjarins, og ég heimta skýlaust svar ráðh. um það, hvort hann ætlar sér að stofna til varalögreglu eftir þessari samþykkt bæjarstj., þótt ekki sé búið að fullnægja ákvæðum 1. gr. og án þess að nokkur ástæða sé fyrir hendi vegna öryggis bæjarins. Ef svo er, virðist mér hann ganga, að vísu með sínum flokki, en þvert ofan í ákvarðanir þingsins, þótt sú ákvörðun væri einskonar málamiðlun, sem Framsfl. kom á við sjálfstæðismenn, þótt við værum mótfallnir lögunum. Ég vil einungis geta þess, að það er auðvitað rangt, sem hv. þm. G.-K. sagði um kostnaðinn af þessari lögreglu fyrir Rvík. Hann sagði, að hugsað væri um 50–60 manna lögreglu og að kostnaðurinn væri 30–60 þús. kr. En þetta er einungis fastakaupið, sem á að vera 50 kr. á manuði, fyrir utan allan aukakostnað, sem gera má ráð fyrir, að verði svipaður og við lögregluna sjálfa, en þar er hann um 2000 kr. á mann, og þar að auki kemur húsnæði, ljós og hiti. Og þegar þessir menn eru svo kallaðir til vinnu, þá á að greiða þeim 5 kr. á fyrstu klst. og síðan eitthvað dálítið lægra tímakaup. Fyrsta klst. kostar 500 kr. fyrir 100 manna lið, og kostnaðurinn verður upp undir 300 þús. kr. á ári. Af því greiðir ríkið þó ekki nema 70 þús. Þetta er æðimikill baggi fyrir bæjarsjóð og einnig fyrir ríkissjóð. Ég verð að segja, að þetta er ekki einungis fjandsamlegt í garð verkalýðsins, því að það mun vera almenn skoðun verkalýðsins í landinu, að varalögreglunni sé sérstaklega beint gagnvart honum, heldur er það fullkomið ráðleysi, ef ríkisstj. og bæjarsjóður ætlar að fara að verja stórupphæðum svo hundruðum þúsunda skiptir — í varalögreglu, samtímis því sem allt er gert af hálfu Sjálfstfl., sem unnt er, til að hindra aukna atvinnubótavinnu í landinu. Með þessu fé mætti mikið bæta úr því atvinnuástandi, sem nú er, og skapa meiri velmegun að því leyti.